Breytingar á leiðakerfi og ný leiðabók
Breytingarnar á leið 7 eru að vagninn mun aka í Nauthólsvík á sumrin og taka við akstri leiðar 13 um Hálsahverfið og Grafarholt. Við þessar breytingar verður akstur aflagður um Suðurhlíð og að Perlu. Settar verða upp biðstöðvar á Bústaðaveg við gatnamótin að Litluhlíð, sem eru í beinum tengslum við göngustíg að Perlunni. Leið 7 hefur hingað til einungis ekið um Suðurhlíð í ferðum frá Lækjartorgi að Ártúni, en framvegis verður hverfinu þjónað með biðstöðvum á Bústaðarvegi í báðar áttir.
Í ferð leiðar 110 frá Lækjartorgi kl. 7:07 hefur verið ekið um Bitruháls, Dragháls, Krókháls, Stuðlaháls, Bæjarháls að Þingási. Þessi hringur verður framvegis einnig ekinn í ferð frá Lækjartorgi kl. 7:27 vegna breytinga á leið 7 um hverfið.
Ferðum á leið 20 á Kjalarnes verður fjölgað. Þetta er gert með því að vagninn ekur á milli Þverholts í Mosfellsbæ og Arnarholts á Kjalarnesi í beinum tengslum við leið 25 í Mosfellsbæ. Fyrstu ferðir verða þó frá Hlemmi og Ártúni eins og verið hefur. Við þessar breytingar fjölgar ferðum leiðar 20 frá Arnarholti úr 6 í 10 virka daga og úr 2 í 6 um helgar.
Við þessa breytingu verður leið 25 ekinn á 30 mín. ferðatíðni yfir sumartímann frá kl. 9 til 19 í stað 60 mín. ferðatíðni eins og gert hefur verið undanfarin ár.
Leiðir 140/150 sem haft hafa endastöð við Mæðragarðinn í Lækjargötu verða framvegis með endastöð neðst í Hverfisgötu við Stjórnarráðshúsið og þannig í styttri og þægilegri gönguvegalengd frá skiptistöðinni á Lækjartorgi.
