Sumarleikur bus.is
Stysta leiðin milli tveggja áfangastaða
Fyrstu þátttakendur í sumarleiknum voru þau Jón Jósep Sæbjörnsson og Esther Talía Casey úr söngleiknum Grease. Þær Maríkó Margrét og Þóra Karítas í Hjartslætti á ferð og flugi, brugðu sér í strætóferð og sóttu söngspírurnar í Borgarleikhúsið. Saman óku þau að höfuðstöðvum Sjá viðmótsprófana í Ingólfsstræti, þar sem þau Jónsi og Esther spreyttu sig á sumarleik bus.is.
Sumarleikurinn fer fram á nýju vefsvæði Strætó bs., www.bus.is, en því er ætlað að auka þjónustu og upplýsingagjöf til almennings. Meðal nýjunga á vefnum má nefna Ráðgjafann, gagnvirkt upplýsingakerfi um áfangastaði, sem kemur við sögu í sumarleiknum. Með hjálp hans er hægt að finna hvaða leiðir eru í boði milli tveggja áfangastaða. Notandinn slær inn götuheiti og húsnúmer eða kennileiti og velur svo sveitarfélag. Ráðgjafinn birtir tillögur að þeim ferðum sem koma til greina og taka skemmstan tíma. Tilgangur Ráðgjafans er að bæta aðgengi að upplýsingum um ferðir strætó svo viðskiptavinir eigi auðvelt með að finna hvaða leið hentar þeim best.
Sumarleikurinn á www.bus.is felst í því að finna stystu leiðina milli höfuðstöðva Strætó bs. í Þönglabakka 4 og höfuðstöðva Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli. Þátttakendur velja svo að taka þátt í sumarleik, velja stystu leiðina og skrá nafn sitt í pott.
Öllum þátttakendum verður boðið til sumargleði Strætó á Ylströndinni í Nauthólsvík laugardaginn 19. júlí, þar sem þær Maríkó og Þóra afhenda vinningana. Þar verður boðið upp á léttar veitingar og óvæntar uppákomur.
