hvert viltu komast...
klukkan er 14:34


Fréttir
Íþróttaálfurinn

Latóhagkerfið, hollasta hagkerfi heims tekið í notkun á ný

Strætó og Lató um borg og bý

19.6.2003

Þetta er þriðja sumarið í röð sem hollasta hagkerfi heims, Latóhagkerfið, gildir hér á landi, en gjaldmiðillinn Lató gildir fyrir alla félaga í Æskulínu Búnaðarbankans. Í fyrra nam aukningin í hagkerfinu 60% milli ára. Í hvert skipti sem börn 12 ára og yngri leggja inn pening á Æskulínureikning sinn fá þau ígildi hans í Lató í staðinn, að hámarki þúsund Lató - auk bankavaxta. Fyrir Lató geta börn svo keypt ýmsar vörur og þjónustu víðsvegar um landið. Síðastliðið sumar söfnuðu börn í Latóhagkerfinu 27 milljónum króna inn á reikninga sína.

Sú nýjung hefur verið tekin upp í hagkerfinu að krakkar geta nú greitt með Lató í strætó og einn vagnanna verður sérstaklega merktur Latóhagkerfinu í sumar. Sá vagn verður á flakki og ekur allar leiðir Strætó bs. með reglulegu millibili. Áfram verður svo hægt að kaupa ferskt grænmeti og ávexti fyrir Lató, en einnig Dreitil, Cheerios og Latóvatn. Lató má einnig nota til að greiða aðgang að Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, að sundlaugum Reykjavíkur og nokkrum völdum sundstöðum utan Reykjavíkur.

 Latóvörur er hægt að kaupa í verslunum Hagkaupa bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Þær fást einnig í völdum verslunum utan Reykjavíkur. Allar Latóvörur eru sérmerktar Latóhagkerfinu og þær eru eingöngu ætlaðar börnum tólf ára og yngri.

Siðastliðið sumar keyptu börn vörur í Latóhagkerfinu fyrir andvirði um 30 milljóna króna

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica