Nýtt vefsvæði Strætó bs.
Rafræn þjónusta fyrir viðskiptavini
Með hjálp Ráðgjafans er hægt að finna hvaða leiðir eru í boði milli tveggja áfangastaða. Notandinn slær inn götuheiti og húsnúmer eða kennileiti og velur svo sveitarfélag. Ráðgjafinn birtir tillögur að þeim ferðum sem koma til greina og taka skemmstan tíma. Tilgangur Ráðgjafans er að bæta aðgengi að upplýsingum um ferðir strætó svo að viðskiptavinir eigi auðvelt með að finna hvaða leið hentar þeim best.
Farþegar eiga einnig kost á að kaupa kort og miða á vefnum sem unnt er að nálgast á næsta afgreiðslustað Strætó. Sú þjónusta gæti hentað foreldrum vel til að kaupa strætókort handa börnum og unglingum. Nýtt vefsvæði Strætó er fyrsti liður í framtíðar- uppbyggingu vefsvæðis Strætó og rafrænnar þjónustu fyrir viðskiptavini.
Fyrirtækið Sjá ehf. sá um þarfagreiningu og vann að innra skipulagi vefjarins. Við greiningu á þörfum viðskiptavinanna kom upp hugmyndin að ráðgjafa sem á einfaldan hátt birtir upplýsingar um þá ferðakosti sem eru í boði. Hugbúnaðarfyrirtækið Trackwell, sem hefur sérhæft sig í staðsetningarlausnum ásamt fleiru, var fengið til að sjá um smíði og uppsetningu Ráðgjafans. Íslenska Vefstofan hannaði vefinn í vefumsjónarkerfinu Eplica frá Hugsmiðjunni. Sjá ehf. hafði yfirumsjón með verkinu.
Strætó bs. er byggðasamlag í eigu sjö sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hlutverk byggðasamlagsins er að sinna almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að efla almenningssamgöngur, bæta þjónustu og auka hagkvæmni. Fyrirtækið rekur almenningsvagnaþjónustu á svæðinu með einu leiðakerfi og einni gjaldskrá og leitar hagkvæmustu leiða í rekstri og þjónustu hverju sinni. Eignarhlutföll byggjast á íbúafjölda sveitarfélaganna. Fyrirtækið hefur jafnframt umsjón með ferðaþjónustu fatlaðra.
