Fréttir
Samstarfssamningur Latabæjar og Strætó bs
Börn á aldrinum 6 - 11 ára geta greitt strætófargjald með Lató í sumar
Latóhagkerfið er samstarfssamningur milli Latabæjar og Krakkabanka Búnaðarbankans. Börn sem leggja inn á æskulínureikning fá afhent andvirði innleggsins í Latóseðlum, sem þau geta nýtt sér til greiðslu á vörum og þjónustu samstarfsaðila í Latóhagkerfinu. Starfstími Latóhagkerfisins er frá 19. júní til 31. ágúst, og á þeim tíma geta börn á aldrinum 6 - 11 ára greitt fargjald sitt í strætó með því að greiða 100 Lató.
