klukkan er 09:38


Fréttir

Liðvagnar á leið 140

Mesta afkastagetan nú þar sem þörfin er mest 

15.5.2003

Samkvæmt farþegatalningum Strætó bs. er farþegafjöldi mestur á leið 140.  Þá er dreifing farþegafjölda með þeim hætti að tiltölulega margir farþegar eru á þessari leið utan álagstíma, einkum eftir hádegi.  Það þótti því rétt að færa þá tvo liðvagna sem eru í strætóflotanum yfir á leið 140.  Akstri á þessari leið er sinnt af verktaka, Hagvögnum hf.  Það varð nýverið að samkomulagi milli þeirra og Strætó bs. að Hagvagnar hf. keyptu þessa tvo vagna af Strætó bs., og jafnframt ákveðið að þeir yrðu framvegis notaðir á leið 140.  Með þessu móti minnkar þörf á aukavögnum, auk þess sem fleiri farþegar fá nú sæti þegar ferðast er.  Við vonumst til að breyting þessi hugnist farþegum okkar á leið 140.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica