Fréttir
Reiknivél fyrir gjaldsvæði og yfirlit yfir gjaldsvæði á Suðurlandi
Þangað til kaupsíðan fyrir Suðurland kemur í notkun er hægt að sækja sérstaka reiknivél sem reiknar sjálfkrafa fjölda gjaldsvæða auk þess sem reiknivélin kemur með verðyfirlit fyrir þá greiðsluhætti sem eru í boði.
Skjalið er í Excel töflureikni og til að geta notað það á réttan hátt þarf að samþykkja að leyft sé að nota macro í öryggistillingunum í Excel forritinu.
Hægt er að sækja skjalið með því að smella á slóðina sem fylgir: Reiknivél fyrir gjaldsvæði
Einnig er hægt að sækja yfirlitskort fyrir gjaldsvæðin á Suðurlandi á slóðunum hér að neðan:
Kort 1: Hefðbundið kort
Kort 2: Beinlínukort
