Strætó nýttir sér kosti rafrænna textaskilta
Liður í að bæta þjónustuna við farþegana
Margir muna þá tíð er allir strætisvagnar í Reykjavík höfðu bæði númer og leiðaheiti í glugganum fyrir ofan framrúðuna. Fyrir all mörgum árum var ákveðið að hætta notkun þessara merkinga, enda nokkuð erfitt um vik með gamla fyrirkomulaginu. Þá þurfti að snúa tjaldi með sveif, en leiðaheitin höfðu verið prentuð á það. Með nútímatækni hefur þetta auðveldast til muna, þar sem skiltin í nýjustu vögnunum er öll rafræn, og því unnt að forrita textann sem birtast á hverju sinni, og því stýrt úr hnappaborði í mælaborði bílstjórans. Nú hefur verið tekin sú ákvörðun að taka þessar leiðamerkingar í notkun að nýju, farþegum okkar til þæginda. Þeir vagnar sem hafa þannig búnað hafa því ávallt upplýsingar um í hvaða átt er stefnt, í upplýsingaglugganum ofan framrúðunnar. Svo dæmi sé tekið heitir leið 2 “Grandi Vogar”, og mun því standa “Vogar” á skiltinu þar til komið er inn í Voga, en þar skiptir bílstjórinn yfir á “Grandi” allt þar til komið er á endastöð að nýju. Með þessari breytingu vonumst við hjá Strætó til að bæta þjónustuna, sem og finnst okkur sjálfsagt að notfæra okkur þann búnað sem til staðar er á vögnunum. Búnaðurinn er einungis til staðar á 12 vögnum enn sem komið er, en þeim fer stöðugt fjölgandi.
