klukkan er 07:43


Fréttir

Vetnisstöðin vígð á sumardaginn fyrsta

Fyrsta stöð sinnar tegundar í heimun, sem er hönnuð sem almenningsstöð

22.4.2003

teikning af vetnisstöðinniMerk tímamót verða á sumardaginn fyrsta þegar vetnisstöðin verður vígð.  Þá verður stigið mikilvægt skref í átt að vetnisvæðingu samfélagsins, en það er sem kunnugt á stefnuskrá stjórnvalda.  Strætó bs. er þátttakandi í ECTOS verkefninu, en það er skammstöfun fyrir "Ecological City Transport System".  Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu, en um framkvæmdina sér Íslensk Nýorka hf.  Það fyrirtæki er að hálfu í eigu íslenska ríkisins, auk þess sem fyrirtækin Norsk Hydro, Shell Hydrogen og Daimler Chrysler eiga hinn helming fyrirtækisins að jöfnu.  Samhliða vígslu vetnisstöðvarinnar verður efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu í Reykjavík um vetni og vetnisfarartæki.  Gríðarleg framþróun á sér stað um þessar mundir á vettvangi vetnis og vetnisfarartækja, en þau eru að margra mati bjartasta vonin um að leysa af hólmi hefðbundi eldsneyti auk þess sem mengun af brennslu vetnis er engin (útblásturinn er hreint vatn). 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica