Fyrstu drög að nýju leiðakerfi kynnt
Gert ráð fyrir hraðleiðum sem aka einungis eftir stofnbrautum
Eitt af meginverkefnum Strætó bs. er að ráðast í heildarendurskoðun á leiðakerfinu, enda fyrirtækinu ætlað að sinna almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu með einu leiðakerfi og einni gjaldskrá. Eins og nú háttar til er ekið á leiðakerfi sem varð til þegar SVR og AV sameinuðust í Strætó bs. um mitt ár 2001. Af þessum sökum ber kerfið þess merki að hafa ekki verið hannað fyrir þjónustusvæðið sem eina heild. Veturinn 2001 - 2002 var leiðakerfishópur að störfum innnan fyrirtækisins, og leiddi sú vinna m.a. til þeirrar niðurstöðu að eðlilegast væri að láta flestar leiðir koma við á nýrri miðlægri skiptistöð, nærri gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Hönnuðir voru fengnir til að gera frumdrög að nýrri skiptistöð á svæðinu, og gerði tillagan ráð fyrir að byggja skiptistöðina undir Miklubraut, á móts við norðurenda Kringlunnar.
Eftir að tillögur leiðakerfishópsins lágu fyrir, var ákveðið að kynna hugmyndirnar um miðlæga skiptistöð fyrir þeim aðilum er eiga hagsmuna að gæta, en hugmyndin gekk m.a. út á að skiptistöðin yrði jafnframt nokkurs konar miðstöð almenningssamgangna, þ.e. að auk strætó hefðu þar aðstöðu hópferðabílar, langferðabílar, flugrútur o.fl. Hugmyndirnar voru einnig kynntar borgaryfirvöldum og Vegagerðinni, með það í huga hvort e.t.v. mætti tengja byggingu miðstöðvarinna gerð mislægra gatnamóta á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.
Um haustið 2002 var ákveðið að leita eftir samstarfi við erlenda ráðgjafa, með það að markmiði að kanna nánar hugmyndir Strætó bs. um nýtt leiðakerfi, ásamt hugmyndinni um byggingu miðlægrar skiptistöðvar. Niðurstaðan varð sú, að efnt var til samstarfs við tvö ráðgjafafyrirtæki, annað sænkst hin hitt danskt. Danska fyrirtækið, Ramböl Nyvig, hefur um langt árabil unnið að ráðgjöf hér á landi, nú síðast að gerð svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Sænska fyrirtækið, ÅF Trafikkompetens, eru sérhæfðir á sviði almenningssamgangna.
Tillögur ráðgjafanna voru kynntar í byrjun apríl. Tillögur ráðgjafanna eru um margt líkar, en þó er áherslumunur. Segja má að báðar tillögurnar geri ráð fyrir hraðleiðaneti, sem fyrst og fremst aka eftir stofnbrautum. Byggir þetta á hugmyndafræði sem nefnd hefur verið “think train - drive bus”, þ.e. leiðirnar eru skipulagðar eins og um lestir væri að ræða, en ekið með hefðbundnum strætisvögnum. Góð reynsla er af slíkum nýjungum, bæði í Svíþjóð og Danmörku. Þá gera báðar tillögurnar einnig ráð fyrir auknu þjónustuframboði á álagstíma, en að dregið verði úr því í staðinn þegar eftirspurnin er minni. Báðir ráðgjafar eru sammála um að ekki sé ráðlegt að ráðast í gerð miðlægrar skiptistöðvar á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar, heldur skuli annarra leiða leitað í þeim efnum. Nokkrir valkostir eru nefndir, en of snemmt er að segja til um hvaða kostur verður valinn.
Á næstunni verður farið vandlega yfir tillögur ráðgjafanna, og ákveðin næstu skref. Áhersla verður lögð á að halda verkefninu áfram af fullum þunga, svo unnt verði sem fyrst að hrinda nýju og stórbættu leiðakerfi í framkvæmd.
