hvert viltu komast...
klukkan er 14:23


Fréttir

Samningur um smartkortakerfi samþykktur í borgarráði

Reykjavíkurborg, Strætó bs. og Smartkort hf. munu á næstu dögum undirrita samning um þróun smartkortakerfis. 

9.4.2003

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum þ. 8. apríl fyrir sitt leyti samning um þróun smartkortakerfis.  Stjórn Strætó bs. hafði áður samþykkt heimild til framkvæmdastjóra að undirrita samninginn með fyrirvara um samþykki stjórnar.  Með þróunarsamningnum er stigið mikilvægt skref í átt til nýrra tíma hvað varðar rafræna greiðslumiðlun.  Samningsaðilar munu gefa út sameiginlegt kort, sem mun verða unnt að nota á öllu höfuðborgarsvæðinu til greiðslu ýmiss konar þjónustu á vegum sveitarfélaganna.  Unnt verður að hlaða forgreiddri þjónustu inn á kortið (t.d. sundmiðum, strætómiðum) og / eða peningum inn á rafræna buddu kortsins.  Þannig getur korthafinn nýtt eitt og sama kortið til greiðslu þjónustu fleiri en eins þjónustufyrirtækis, og er ekki bundinn af því að eiga sérstaka "vöru" inn á kortinu.  Þannig er t.d. hægt að hugsa sér að hafa inni á kortinu 30 daga strætókort, en nýta rafeyrinn til greiðslu aðgangs á sundstaði.  Unnt verður að kaupa hleðslu inn á kortið hjá þjónustusaðilunum, en síðar verður einnig unnt að gera viðskipti á netinu. 

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica