klukkan er 09:28


Fréttir

Ársreikningur 2002

Velta ársins nam 1.944 miljónum króna. Tap af rekstrinum var 22,5 m.kr., eða sem nemur 1% af veltu. Rekstraráætlun gerði ráð fyrir tekjuafgangi að fjárhæð 10,4 m.kr

2.4.2003

Fargjaldatekjur ársins námu 740 m.kr.  Aðrar tekjur voru 42,4 m.kr., þannig að eigin tekjur í heild voru 782  m.kr.  Tekjuhlutfallið reyndist því vera liðlega 40%.  Framlög eigenda námu alls 1.162 m.kr., og skiptast þau framlög á milli aðildarsveitarfélaganna 7 eftir kostnaðarskiptireglum, sem einkum taka mið af akstri í viðkomandi sveitarfélagi sem og íbúafjölda.  Reykjavíkurborg greiðir stæsta hlut aðildarsveitarfélaganna, eða tæp 70%. 

 

Rekstur byggðasamlagsins var í öllum meginatriðum skv. áætlunum.  Þó urðu frávik á nokkrum liðum, sem urðu þess valdandi að ekki tókst að standast kostnaðaráætlun.  Hér munar mestu um hækkun tryggingaiðgjalda, en tryggingaviðskipti voru boðin út snemma á síðasta ári, og hækkuðu iðgjöld frá því sem áður var um 40%.  Þá reyndust kostnaður vegna nokkurra verkefna hærri en gert hafði verið ráð fyrir.  Frávik frá áætlun var u.þ.b. 1%.  Tekjuáætlun stóðst nokkurn veginn.

 

Áætlanir ársins 2003 gera ráð fyrir að velta byggðasamlagsins losi 2 miljarða.  Nokkur stór og umfangsmikil verkefni standa yfir á þessu ári, má þar helst nefna heildarendurskoðun leiðakerfisins, upptöku rafræns greiðslukerfis og þátttöku í tilraunaverkefni um rekstur þriggja vetnisstrætisvagna.  

 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica