hvert viltu komast...
klukkan er 22:12


Fréttir

Ný akstursleið strætó um Kleppsveg - 21.12.2006

Færslu Sæbrautar er nú lokið og akstursleiðir komnar í endanlegt horf. Samkvæmt hinu nýja skipulagi mun Strætó, leið 12, aka eftir Kleppsvegi til vesturs frá Langholtsvegi að Laugarnesvegi frá og með 23. desember. Til austurs frá Laugarnesvegi verður áfram ekið um Sæbraut eins og verið hefur. Lesa meira
 

Olíufélögin dæmd til að greiða Strætó bætur - 13.12.2006

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag olíufélögin Ker hf, sem áður var Olíufélagið Esso, OLÍS og Skeljung til að greiða Strætó bs 5,8 milljónir króna í bætur vegna samráðs þeirra á níunda áratug síðustu aldar. Þá voru félögin dæmd til að greiða Reykjavíkurborg 72 milljónir vegna sömu saka. Kröfurnar bera dráttarvexti frá apríl 2002. Lesa meira
 

Ársfundur Strætó bs samþykkir ályktun til ríkisvaldsins - 29.11.2006

Framhaldsársfundur Strætó bs var haldinn í Kópavogi 29. nóvember 2006. Á fundinum var m.a. fjallað um rekstrarskilyrði og starfsumhverfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.  Af því tilefni samþykkti fundurinn ályktun þar sem ríkisvaldið er hvatt til að styðja við bakið á starfseminni. Lesa meira
 

Enn fjölgar farþegum Strætó - 10.11.2006

Farþegum í strætó fjölgaði um 7,1% í október í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð þar sem farþegum fjölgar og sjötti mánuður ársins þar sem farþegar eru fleiri en í sama mánuði á síðasta ári.

Lesa meira

 

Stjórnsýsluúttekt á Strætó bs. - 19.10.2006

Að ósk stjórnar Strætó bs. var endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte falið að gera stjórnsýsluúttekt á Strætó. Um er að ræða fyrstu úttektina sem gerð hefur verið á byggðasamlaginu sem er í eigu sjö sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Lesa meira
 

Ný biðstöð við IKEA í Garðabæ - 11.10.2006

Bætt verður við nýrri biðstöð nálægt hringtorgi við bílastæði nýrrar verslunar IKEA í Garðabæ. Leið 22, sem ekur á milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar og ekur um Reykjanesbraut, mun hafa viðkomu á þessari biðstöð í báðar áttir. Lesa meira
 

Enn fjölgar farþegum Strætó - 9.10.2006

Farþegum Strætó fjölgaði um 45.801 farþega, eða 6,8% í september, miðað við sama mánuð á síðasta ári. Farþegum Strætó hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu mánuðina og er aukningin 3,5% fyrstu níu mánuði ársins, miðað við sama tíma í fyrra.

Lesa meira
 

Leið S5 ekur að nýju - 5.10.2006

Stjórn Strætó bs hefur ákveðið að hefja akstur að nýju á stofnleið fimm sem tengir Árbæjar- og Seláshverfi við miðborgina. Akstursleiðin er sú sama og var áður en S5 var aflögð s.l. sumar. Aksturinn hefst árdegis föstudaginn 6. október.

 

Farþegum strætó fjölgaði um 20% í júlí og ágúst - 18.9.2006

Farþegum Strætó fjölgaði um 20% í júlí og ágúst samanborið við sömu mánuði í fyrra. Ef horft er á annan ársþriðjung í heild nemur fjölgunin 9,2%. Farþegar í júlí voru alls 559.315 en voru 470.160 í júlí 2005. Í ágúst var fjöldi farþega 755.325 en var 625.589 í sama mánuði á síðasta ári. Þetta er mikill viðsnúningur frá fyrsta ársþriðjungi þegar farþegum fækkaði um 1,9% frá fyrsta ársþriðjungi 2005.

Lesa meira

 

Norðurlandamót vagnstjóra 2006 - 30.8.2006

Nú nýverið, fór norðurlandamót vagnstjóra fram í Helsinki í þrítugasta sinn. Stofnað var til þessarar keppni árið 1976. Tilgangur þessa móts hefur alltaf verið að auka og viðhalda færni og þekkingu vagnstjóra á ökutækjum sínum, auk þess sem góður félagsskapur hefur myndast í gegnum tíðina og traust vinabönd myndast í áranna rás. Lesa meira
 

Vetraráætlun og ný leiðabók - 18.8.2006

Vetraráætlun tekur gildi sunnudaginn 20. ágúst. Þá verða gerðar lítils háttar breytingar á tímatöflum leiða 19 og S6, með það fyrir augum að bæta tengingar milli þessara leiða í Ártúni. Með þessu móti verður biðtími fyrir íbúa Árbæjar- og Seláshverfa og í Norðlingaholti lágmarkaður, bæði þegar ferðast er til og frá þessum hverfum. 

Lesa meira

 

Skólakort fyrir veturinn - 17.8.2006

Farþegum Strætó býðst nú að kaupa Skólakort fyrir komandi vetur, eins og í fyrra vetur. Kortið gildir til 1. júní 2007 og er hagkvæmasti kosturinn fyrir þá sem nota strætó að staðaldri. Það er í boði fyrir alla notendur strætó og verður komið á sölustaði í dag

Lesa meira
 

Með Strætó á Menningarnótt - 16.8.2006

Strætó hvetur íbúa höfuðborgar- svæðisins til að nýta sér þjónustu strætisvagna ætli þeir að taka þátt í viðburðum Menningarnætur 19. ágúst. Mikill mannfjöldi safnast alla jafna saman í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt og getur verið erfitt um vik að fá bílastæði.

Lesa meira

 

Breyttar akstursleiðir í miðborginni laugardaginn 12. ágúst - 11.8.2006

Vegna lokunar Lækjargötu á Hinsegin dögum laugardaginn 12. ágúst verður nauðsynlegt að breyta akstursleiðum strætisvagna. Megin breytingin er að frá kl. 7 til kl. 18 verður ekki ekið um Hverfisgötu og Lækjargötu Lesa meira
 

Leið 19 ekur fram til miðnættis - 8.8.2006

Frá og með deginum í dag, 8. ágúst, mun leið 19 aka fram til miðnættis, en ekki til kl. 23 eins og verið hefur. Þannig verður síðasta ferð frá Hlemmi kl. 23:55 og er ekið að Bjallavaði og síðasta ferð frá Bjallavaði að Hlemmi er kl. 23:47. Lesa meira
 

Breytingar á þjónustu leiðar 19 vegna brottfalls leiðar S5 - 19.7.2006

Stjórn Strætó bs hefur ákveðið að hefja ekki akstur að nýju á leið S5, að aflokinni tímabundinni niðurfellingu leiðarinnar í sumar. Nú hafa verið ákveðnar breytingar á þjónustu leiðar 19 til mótvægis.  Lesa meira
 

Aðhaldsaðgerðum Strætó bs ætlað að stöðva 360 millj. kr. hallarekstur - 14.7.2006

Stjórn Strætó bs hefur ákveðið að grípa til aðgerða sem ætlað er að muni lækka rekstrarkostnað sem nemur 360 milljónum króna á ársgrundvelli. Ákvörðunin er tekin í ljósi mikils hallareksturs á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Ljóst er að umtalsverðar breytingar og endurbætur á leiðakerfi hafa ekki skilað þeirri aukningu farþega og tekna sem reiknað var með. Farþegum hefur því miður haldið áfram að fækka eins og árin á undan. Þetta hefur leitt til alvarlegrar rekstrarstöðu, sem ekki verður komist hjá að taka á með afgerandi hætti.

Lesa meira

 

Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur vegna manneklu - 6.7.2006

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur gengið erfiðlega að fá afleysingabílstjóra til starfa hjá Strætó bs yfir sumarleyfistímann, sem er bein afleiðing mikillar þennslu í þjóðfélaginu og manneklu á vinnumarkaði. Þrátt fyrir það hefur tekist að halda öllum leiðum Strætó gangandi til þessa. Nú er ljóst að akstur á leið S5 leggst af í fjórar vikur frá og með næsta föstudegi, 7. júlí fram til 8. ágúst nk.

 

Ármann Kr. Ólafsson er nýr formaður stjórnar Strætó bs - 21.6.2006

Nýkjörin stjórn Strætó bs kom saman til fyrsta fundar síns miðvikudaginn 21. júní. Á fundinum var kjörinn nýr stjórnarformaður, Ármann Kr. Ólafsson, fulltrúi Kópavogs í stjórn byggðasamlagsins. Lesa meira
 

Akstur á þjóðhátíðardaginn 17. júní - 16.6.2006

Á þjóðhátíðardaginn verður talsverð röskun á akstri strætisvagna í miðborg Reykjavíkur vegna hátíðahaldanna. Miðbærinn verður lokaður fyrir allri umferð, og því munu vagnarnir aka aðrar götur til að komast leiðar sinnar.  Lesa meira
 

Sumartími á stofnleiðum - 31.5.2006

Í samræmi við gildandi leiðabók Strætó bs. verður ekki ekið með 10 mínútna tíðni frá 5. júní til og með 18. ágúst. Þannig verður ekið á 20 mínútna tíðni á stofnleiðum eins og á öðrum leiðum virka daga og 30 mínútna tíðni á kvöldin og um helgar. Samfara þessu verða breytingar á fyrstu ferðum. Lesa meira
 

Akstur um Hvítasunnu - 30.5.2006

Hvítasunnudag, 4. júní og annan í hvítasunnu, 5. júní er ekið samkvæmt tímatöflum sunnudaga. Akstur hefst um kl. 10 báða dagana og er ekið á 30 mínútna tíðni til kl. 23 en þá lýkur akstri. Stofnleiðir aka til miðnættis. Leið 23 ekur á 60 mínútna tíðni og farnar eru 6 ferðir á leið 27 á Kjalarnes og Akranes. Lesa meira
 

Akstur 25. maí - 23.5.2006

Uppstigningardag 25. maí verður ekið samkvæmt tímaáætlun sunnudaga. Þannig hefst akstur á öllum leiðum um kl. 10 og er ekið á 30 mínútna tíðni, nema á leið 23 sem er með 60 mínútna tíðni og á leið 27 eru farnar 6 ferðir frá Háholti í Mosfellsbæ. Akstri lýkur um kl. 23 , en stofnleiðir aka til miðnættis.

Lesa meira

 

Biðstöð á Gnoðarvogi - 28.4.2006

Vegna byggingaframkvæmda við verslunarmiðstöðina Glæsibæ hefur akstri leiðar 14 verið breytt lítilsháttar og biðstöðin á Gnoðarvogi við verslunarhúsið verið færð í Álfheima nær Suðurlandsbraut. Þetta er gert til bráðabirgða meðan þrenging í Gnoðarvogi við Glæsibæ varir. Lesa meira
 

Akstur 1. maí - 27.4.2006

Á verkalýðsdaginn 1. maí verður ekið samkvæmt tímaáætlun sunnudaga. Þannig hefst akstur á öllum leiðum um kl. 10 og er ekið á 30 mínútna tíðni, nema á leið 23 sem er með 60 mínútna tíðni og á leið 27 eru farnar 6 ferðir frá Háholti í Mosfellsbæ. Akstri lýkur um kl. 23 , en stofnleiðir aka til miðnættis. Lesa meira
 

Breytingar á tímatöflum - 7.4.2006

Eftir að endurskoðað leiðakerfi tók gildi 5. mars s.l. hafa tímatöflur nokkurra leiða verið til skoðunar og umfjöllunar. Komið hefur á daginn að sumar þeirra þarfnast endurskoðunar við. Næstkomandi sunnudag 9. apríl verður tímatöflum á leiðum 12, S2 og 28 breytt lítilsháttar, og þær rýmkaðar. Lesa meira

 

Akstur um bænadaga og páska - 6.4.2006

Dagana 10. til 12. apríl:
Stofnleiðir aka ekki með 10 mínútna ferðatíðni.
Skírdagur, 13. apríl:

Akstur eins og á sunnudögum.

Lesa meira
 

Glitnir byggir upp við Kirkjusand - 16.3.2006

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag samning við Glitni (Íslandsbanka) um að bankinn kaupi byggingarrétt á hluta Strætólóðarinnar við Kirkjusand til frekari uppbyggingar bankans. Verðið sem greitt er fyrir byggingarrétt á lóðinni nemur 972 milljónum króna, en svæðið kemur til afhendingar í tveimur áföngum, haustið 2006 og haustið 2007.
Lesa meira
 

Ánægja með breytt leiðakerfi - 6.3.2006

Viðskiptavinir Strætó eru ánægðir með breytingarnar á leiðakerfinu sem tóku gildi í gær, sunnudaginn 5. mars. Með breytingunum voru sniðnir af vankantar leiðakerfisins sem tók gildi í júlí á síðasta ári.

Lesa meira

 

Uppfærsla á heimasíðu Strætó bs. - 5.3.2006

Tímatöflur og leiðakort hér á heimasíðunni hafa nú verið uppfærð í samræmi við breytt leiðakerfi frá og með sunnudeginum 5. mars. Ráðgjafinn hér á síðunni hefur einnig verið uppfærður og veitir nú upplýsingar um ferðaval samkvæmt breyttu leiðakerfi. Hægt er að nálgast leiðabækur, endurgjaldslaust á sölustöðum og með frekari upplýsingar bendum við einnig á þjónustusíma Strætó bs. 540 2700

Lesa meira
 

Breytingar á leiðakerfi Strætó taka gildi 5. mars. - 1.3.2006

Frá því að nýtt leiðakerfi Strætó var tekið í gagnið í ágúst á síðastliðnu ári hefur Strætó bs safnað saman athugasemdum, ábendingum og skoðunum farþega, bílstjóra og annarra sem hafa haft skoðun á málefnum Strætó bs. Þann 5 mars verða framkvæmdar breytingar á leiðakarfi Strætó sem er ætlað að koma til móts við megnið af þessum athugasemdum og ábendingum og er því um margvíslega þjónustubót að ræða. Lesa meira
 

Farþegum Strætó fjölgar um 6.9% - 21.2.2006

Í nýliðnum janúar ferðuðust 6,9% fleiri farþegar með vögnum Strætó bs. en í sama mánuði síðasta árs og nam fjölgunin alls 50.346 farþegum. Þetta er umtalsverður viðsnúningur, því farþegum Strætó bs. hefur fækkað lítillega síðustu misseri. Lesa meira
 

Vel á vegi stödd í umferðinni - 14.2.2006

Strætó bs. og Umferðarstofa hafa undirritað samning um þátttöku Strætó í verkefninu Vel á vegi stödd í umferðinni. Verkefnið miðar að því að hvetja til bættra umferðarhátta hjá atvinnubílstjórum í því skyni að fækka umferðarslysum og minnka kostnað við rekstur bíla. Lesa meira
 

Endurbætur á leiðakerfi Strætó í mars - 13.2.2006

Þann 5. mars næstkomandi taka gildi endurbætur á leiðakerfi Strætó bs. Endurbæturnar eru meðal annars gerðar eftir gagnlegum ábendingum frá viðskiptavinum Strætó og vagnstjórum. Breytingarnar miða að því að bæta þjónustu Strætó og efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Lesa meira
 

Sorpinu breytt í eldsneyti á strætó - 31.1.2006

Strætó bs. kynnti í dag tvo nýja almenningsvagna, sem ganga fyrir metani. Þar með hefur fyrirtækið stigið enn eitt skrefið í þá átt að draga úr útblástursmengun á höfuðborgarsvæðinu. Áður hafði Strætó bs. verið frumkvöðull í notkun vetnisknúinna bifreiða hér á landi.

Lesa meira

 

Nýr vefur Strætó - 23.1.2006

Á nýjum vef Strætó er að finna endurbættan rafrænan ráðgjafa sem á örskotsstundu veitir nákvæmar upplýsingar um hvernig hentugast er að komast á milli staða með Strætó, hvaða leiðir vagninn fer og hvenær hann er kominn á áfangastað. Lesa meira
 

Pétur Sigurðsson - minning - 20.1.2006

Pétur Sigurðsson vagnstjóri hjá Strætó bs lést í umferðarslysi föstudaginn 13. janúar 2005, hann var jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 20. janúar. Lesa meira
 

Yfirlýsing frá starfsfólki og stjórn Strætó bs. - 13.1.2006

Starfsfólk og stjórn Strætó bs. er harmi slegin vegna hins hörmulega umferðaslyss í morgun þar sem strætisvagnsstjóri beið bana. Tildrög slyssins eru óljós, en vagnstjórinn var einn í bílnum þar sem hann hafði lokið áætlunarakstri og var að ferja strætisvagninn að athafnasvæði Strætó bs. við Kirkjusand.

Hugur allra hjá Strætó er hjá fjölskyldu félaga okkar og við vottum aðstandendum hans sorgar- og samúðarkveðjur.

Fyrir hönd starfsfólks og stjórnar Strætó bs.,

Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri

Lesa meira
 

Endurbættur vefur Strætó - 12.1.2006

Nýr og endurbættur vefur strætó www.straeto.is hefur að bjóða upp á nýja virkni einnar sinnar tegundar á landinu, þar sem hægt er að fá rauntíma upplýsingar um vagna eða leiðir innan við sekúndu eftir að heimilisfang hefur verið slegið inn.

Lesa meira
 

Ný gjaldskrá tók gildi 1. janúar 2006 - 2.1.2006

Hinn 1. janúar 2006 tók gildi ný gjaldskrá hjá
Strætó bs. Gjaldskrána má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.
Lesa meira
 


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica