klukkan er 07:32


Fréttir

Akranes tengist leiðakerfi Strætó bs - 28.12.2005

Undirritaður hefur verið samningur um almenningssamgöngur á milli Reykjavíkur og Akraness, en þessir samningur hefur verið í burðarliðnum um nokkurt skeið. Einnig var undirritaður samningur á milli Akraneskaupstaðar og Vegagerðarinnar um almenningssamgöngur á milli Reykjavíkur og Akraness, sem gerir Akraneskaupstað kleift að gera samninginn við Strætó bs. um tengingu Akraness við leiðakerfi Strætó, sem kemur til með að valda byltingu í samgöngum á Suð-Vesturlandi. Lesa meira
 

Þrjár nýjar leiðir teknar í gagnið í febrúar nk. - 22.12.2005

Stjórn Strætó bs. hefur samþykkt umtalsverðar breytingar á leiðakerfinu að fengnum nokkurra mánaða reynslutíma nýja leiðakerfisins, sem tekið var í notkun sl. sumar. Með þessu vilja stjórnendur Strætó koma til móts við þarflegar ábendingar og athugasemdir vagnstjóra og farþega. Breytingarnar taka gildi í febrúar næstkomandi. Lesa meira
 

75% svifriks af völdum umferðar - 7.12.2005

Magn svifryks hefur undanfarið mælst yfir viðmiðunarmörkum, samkvæmt upplýsingum frá Umhverfissviði Reykjavíkur. Í Reykjavík er 50 - 60% svifryks uppspænt malbik, segir í frétt Umhverfissviðs.    Lesa meira
 

Metanknúnir strætisvagnar senn í notkun - 25.11.2005

Nú styttist í að tveir metanknúnir strætisvagnar verði teknir í notkun og hefji akstur á leiðakerfi Strætó bs. Lesa meira
 

Til hamingju með daginn, konur! - 24.10.2005

Konur hvattar til að koma með strætó í miðbæinn á kvennafrídaginn. Lesa meira
 

Ný leiðabók Strætó bs. með lagfærðum tímatöflum - 14.10.2005

Strætó bs. hefur gefið út nýja leiðabók sem tekur gildi frá og með laugardeginum 15. október. Hafa tímatöflur nokkurra leiða verið lagfærðar og aksturstími leiða 12 og 16 lengdur. Með þessum breytingum er verið að koma til móts við ábendingar frá vagnstjórum og farþegum auk þess sem tekið er mið af reynslunni frá því nýja leiðakerfið var tekið í notkun 23. júlí síðastliðinn. Lesa meira
 

Ný leiðabók - 12.10.2005

Gefin hefur verið út ný leiðabók fyrir þjónustusvæði Strætó bs. Gerðar eru breytingar á tímatöflum leiða S1, S2, 11, 13, 14, 21, 22, 24 og 25, en leiðunum sjálfum ekki breytt. Auk þess hefur þjónustutími leiða 12 og 16 verið lengdur til miðnættis.

Hægt er að nálgast leiðabókina á sölustöðum og skiptistöðvum.

Lesa meira
 

Afhentu Birni 1,3 milljónir króna - 11.10.2005

Fulltrúar söfnunarátaks til handa Birni Hafsteinssyni vagnstjóra, sem missti báða fætur í bílslysi á mótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar 19. ágúst sl., afhentu honum 1,3 milljóna króna ávísun á laugardag. Svo skemmtilega vildi til að þá var einmitt 55 ára afmælisdagur Björns. Lesa meira
 

Tökum strætó á frídegi bílsins - 16.9.2005

Evrópsk samgönguvika stendur yfir í Reykjavík dagana 16.-22. september. Hver dagur samgönguvikunnar eru tileinkaður ákveðnu þema eins og t.d. hjólreiðum og gönguferðum. Síðasti dagur vikunnar, fimmtudagurinn 22. september, er frídagur bílsins. Lesa meira
 

Opnun Snorrabrautar - akstur um gömlu Hringbraut - 11.9.2005

Snorrabraut opnaði að nýju eftir framkvæmdir þann 10. september.  Þar með hefst akstur að nýju vestur gömlu Hringbraut, og tímbundinn akstur um Egilsgötu og Barónsstíg hættir.  Lesa meira
 

Vel heppnaðir fjáröflunartónleikar - 5.9.2005

Vel á aðra milljón króna safnaðist á tónleikum sem haldir voru til styrktar Birni Hafsteinssyni strætóbílstjóra á Broadway um helgina en Björn missti báða fætur í árekstri strætisvagns og vörubíls 19. ágúst síðastliðinn. Lesa meira
 

Tillögur um úrbætur samþykktar í stjórn - 2.9.2005

Stjórn Strætó bs. samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur að úrbótum á nýju leiðakerfi sem koma eiga til móts við athugasemdir sem borist hafa eftir að leiðakerfið var tekið í notkun þann 23. júlí síðastliðinn. Lesa meira
 

Skólakortið fær góðar viðtökur - 2.9.2005

Farmiðasala í ágúst hefur verið mjög góð. Munar þar mest um mikla eftirspurn eftir skólakortinu sem er fyrir alla farþega og gildir til 1. júní 2006. Lesa meira
 

Ráðgjafinn hjálpar farþegum að finna hagkvæmustu leiðina - 23.8.2005

Nýr og endurbættur Ráðgjafi hefur verið tekinn í notkun á vefsíðu Strætó bs. Ráðgjafinn er öflugt hjálparforrit sem veitir nákvæmar upplýsingar um áfangastaði og ferðir strætó með það að markmiði veita aukna þjónustu og að koma notendum milli staða á höfuðborgarsvæðinu á sem hagkvæmastan hátt. Lesa meira
 

Full þjónusta í leiðakerfi Strætó bs. - 22.8.2005

Tekist hefur að manna allar vaktir hjá Strætó bs. þannig að full þjónusta verður veitt í nýju leiðakerfi frá og með mánudeginum 22. ágúst. Þetta þýðir að Strætó getur staðið við fyrirheit um að akstur á stofnleiðum verði á allt að 10 mínútna fresti á álagstímum alla virka daga. Lesa meira
 

Yfirlýsing frá Strætó bs. vegna umferðarslyss - 19.8.2005

Stjórn og starfsmenn Strætó bs. eru harmi slegin vegna slyss sem varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar í morgun, þegar vörubíll á leið norður Kringlumýrarbraut skall á strætisvagni sem var á leið vestur yfir gatnamótin. Hugur stjórnar og starfsmanna er hjá vagnstjóranum og fjölskyldu hans en hann slasaðist alvarlega og er á gjörgæslu í kjölfar aðgerðar sem hann gekkst undir. Lesa meira
 

Smásögur hengdar á sætin í Strætó - 19.8.2005

Smásögur eftir Arndísi Þórarinsdóttur, nema í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, munu hanga við sætin í vögnum Strætó bs. frá og með Menningarnótt. Smásögurnar, sem eru níu og eru prentaðar í um 200 eintökum, verða plastaðar og eru ætlaðar farþegum til lesturs. Lesa meira
 

Með Strætó á Menningarnótt - 18.8.2005

Strætó bs. hvetur íbúa höfuðborgarsvæðisins til að nýta sér þjónustu strætisvagna ætli þeir að taka þátt í viðburðum Menningarnætur 20. ágúst næstkomandi. Mikill mannfjöldi safnast alla jafna saman í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt og getur verið erfitt um vik að fá bílastæði og eins að komast áfram á götunum þegar þúsundir stefna heim á svipuðum tíma. Lesa meira
 

Strætó: borgarráð samþykkir forgang í umferðinni - 11.8.2005

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að veita strætisvögnum forgang í umferðinni um Lækjargötu. Til suðurs verður strætóakrein á hægri akrein milli Hafnarstrætis og Austurstrætis og forgangsljós fyrir strætó á gatnamótum Austurstrætis og Lækjargötu. Til norðurs verður strætóakrein á hægri akrein allt frá Bókhlöðustíg að Hverfisgötu. Lesa meira
 

Skólakortið: nýjung frá Strætó - 10.8.2005

Farþegum Strætó býðst nýjung, Skólakortið, frá og með 15. ágúst nk. Skólakortið tekur mið af skólaárinu en er í boði fyrir alla. Kortið er gert til að koma til móts við óskir og þarfir skólafólks og annarra, sem nota strætisvagnana reglulega, um hagkvæman og ódýran ferðakost og gildir það allan veturinn. Lesa meira
 

Bókun frá stjórn Strætó bs. vegna nýs leiðakerfis - 5.8.2005

Stjórn Strætó bs. samþykkti eftirfarandi bókun á fundi sínum föstudaginn 5. ágúst: Lesa meira
 

Aukin tíðni á álagstímum felld niður í þessari viku - 31.7.2005

Breyting verður á þjónustu Strætó á stofnleiðum í þessari viku. Á álagstímum á virkum dögum, að undanskildum mánudegi, mun verða ekið á 20 mínútna fresti í stað 10 mínútna og á laugardag verður ekið með 30 mínútna fresti í stað 20 mínútna. Leiðabókin gildir að öllu leyti nema hvað álagstíma stofnleiða varðar. Lesa meira
 

Strætó: Aukin tíðni á álagstímum felld niður næstu þrjá daga - 27.7.2005

Breyting verður á þjónustu Strætó á stofnleiðum næstu þrjá daga. Á álagstímum á fimmtudag og föstudag mun verða ekið á 20 mínútna fresti í stað 10 mínútna og á laugardag verður ekið með 30 mínútna fresti í stað 20 mínútna. Leiðabókin gildir að öllu leyti nema hvað álagstíma stofnleiða varðar. Lesa meira
 

Nýja leiðakerfið fer vel af stað - 26.7.2005

Hið nýja leiðakerfi Strætó hefur gengið vel í dag eins og vonir manna stóðu til. Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Strætó bs., fékkst mikilvæg reynsla á mánudeginum, fyrsta virka deginum sem kerfið var í notkun. Vaktaskipti hafi t.a.m. gengið mun betur í dag og akstur verið á áætlun. Lesa meira
 

Nýtt leiðakerfi Strætó gengið vel í dag - 25.7.2005

Nýtt leiðakerfi Strætó bs. hefur gengið vel það sem af er degi en þetta er fyrsti virki dagurinn sem það er í notkun. Fjöldi fólks hefur nýtt sér vef Strætó til þess að kynna sér hið nýja leiðakerfi. Lesa meira
 

Nýtt leiðakerfi Strætó tekið í notkun - 25.7.2005

Nýtt leiðakerfi Strætó var formlega tekið í notkun á Hlemmi sl. laugardag, 23. júlí, af borgarstjóra og bæjarstjórum aðildarsveitarfélaga Strætó bs. Er þetta fyrsta samræmda leiðakerfi almenningssamgangna fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Lesa meira
 

Fyrsti dagur í nýju leiðakerfi gekk vel - 23.7.2005

Nýtt samræmt leiðakerfi Strætó bs. fyrir höfuðborgarsvæðið var tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Öll framkvæmd gekk vonum framar og vel tókst til með að halda áætlun og akstur á öllum leiðum. Frítt er í strætó fyrstu tvo dagana, 23. og 24. júlí.  Lesa meira
 

Íbúum höfuðborgarsvæðisins boðið við opnun nýs leiðakerfis - 21.7.2005

Nýtt leiðakerfi Strætó bs. verður tekið formlega í notkun á Hlemmi laugardaginn 23. júlí kl. 13:00. Í tilefni þess er íbúum höfuðborgarsvæðisins boðið að vera viðstaddir formlega opnun hins nýja leiðakerfis. Lesa meira
 

Nýrri leiðabók Strætó dreift til íbúa höfuðborgarsvæðisins - 19.7.2005

Nýrri leiðabók Strætó bs. hefur verið dreift með Fréttablaðinu á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu en nýtt leiðakerfi Strætó verður formlega tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Lesa meira
 

Nýtt leiðakerfi Strætó í notkun 23. júlí - 14.7.2005

Nýtt leiðakerfi Strætó bs. verður tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Með nýju leiðakerfi verður í fyrsta sinn komið á sameiginlegu, samræmdu leiðakerfi almenningssamgangna fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Markmiðið er að efla almenningssamgöngur þannig að þær verði raunhæfur valkostur og fleiri taki strætó.

Lesa meira

 

Hlemmur tilbúinn að taka við nýja leiðakerfinu - 5.7.2005

Viðamiklum framkvæmdum við strætisvagnamiðstöðina við Hlemm er nú lokið og þar er því ekkert því til fyrirstöðu að taka nýja leiðakerfið í notkun. Verulegar breytingar hafa orðið á akstursleiðum og aðstöðu Strætó á svæðinu og er mikilvægt að farþegar og ökumenn kynni sér nýtt fyrirkomulag vel. Framkvæmdir innandyra á Hlemmi eru í fullum gangi og segir Þórhallur Halldórsson, deildarstjóri farþegaþjónustu Strætó, að þeim verði lokið tímanlega fyrir 23. júlí en þá tekur nýtt leiðakerfi gildi. Lesa meira
 

Tímatöflur nýja leiðakerfisins komnar á vefinn - 22.6.2005

Nýja leiðakerfið tekur gildi 23. júlí n.k. Nú eru tímatöflur ásamt upplýsing um fyrstu og síðustu ferðir komnar inn á vefinn. Lesa meira
 

Lokun Snorrabrautar og breytingar á akstri strætisvagna - 20.6.2005

Snorrabraut verður lokuð í sumar vegna framkvæmda við nýja Hringbraut. Af þessum sökum breytast akstursleiðir strætó meðan á þessu stendur. Lesa meira
 

Kynningarfundur Hlemmur+ - 20.6.2005

Kynningarfundur verður mánudaginn 20. júní 2005 í biðstöðinni á Hlemmi vegna framkvæmda, á og í næsta nágrenni Hlemms. Fundurinn hefst kl. 17:30

Lesa meira

 

Akstur á þjóðhátíðardaginn 17. júní - 15.6.2005

Á þjóðhátíðardaginn er ekið samkvæmt tímaáætlun á sunnudögum. Akstur hefst um kl. 10 og lýkur um miðnættið. Vegna hátíðahalda í miðborg Reykjavíkur munu akstursleiðir um miðborgina breytast lítilsháttar.  Lesa meira
 

Vagnstjórar Strætó sigruðu með yfirburðum - 6.6.2005

Vagnstjórar Strætó unnu Norðurlandamótið í ökuleikni með yfirburðum og var það fjórði sigur okkar manna í röð. Mótið fór fram á Kirkjusandi á laugardaginn. Íslensku vagnstjórarnir unnu liðakeppnina með yfirburðum en röðuðu sér einnig í þrjú efstu sætin í einstaklingskeppni þar sem Markús Sigurðsson varð hlutskarpastur allra. Lesa meira
 

Nýtt leiðakerfi Strætó í notkun 23. júlí - 23.5.2005

Nýtt leiðakerfi Strætó bs., þar sem í fyrsta sinn verður komið á samræmdu leiðakerfi almenningssamgangna fyrir allt höfuðborgarsvæðið, verður tekið í notkun laugardaginn 23. júlí næstkomandi. Er það breytt dagsetning þar sem áður hafði verið miðað við 12. júní.

Lesa meira

 

Vagnstjórar læra að draga úr mengun og kostnaði með vistakstri - 19.5.2005

Vagnstjórar Strætó hafa að undanförnu sótt námskeið í vistakstri til þess að draga úr mengun og kostnaði vegna eldsneytisnotkunar og viðhalds. Steindór Steinþórsson, deildarstjóri akstursdeildar Strætó, segir ljóst að verulegum árangri megi ná með námskeiðunum og vagnstjórar séu allir af vilja gerðir til þess að tileinka sér ný vinnubrögð í þessu skyni. Á hluta námskeiðsins var einnig fjallað um fagmennsku í starfi og framkomu gagnvart farþegum og samstarfsfólki. Lesa meira
 

Hlemmur tekur stakkaskiptum vegna nýja leiðakerfisins - 11.5.2005

Miklar breytingar standa yfir á Hlemmi þessa dagana, utan dyra sem innan, og er gert ráð fyrir að framkvæmdum vegna þeirra verði lokið áður en nýja leiðakerfið tekur gildi 12. júní næstkomandi. Breytingarnar miða meðal annars að því að veita Strætó stóraukið olnbogarými á Hverfisgötu milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs. Þar er gert ráð fyrir að verði endastöð stofnleiðanna sex í nýja kerfinu. Innandyra er unnið að því að bæta aðstöðu fyrir farþega og starfsfólk, að sögn Þórhalls Halldórssonar, deildarstjóra farþegaþjónustu Strætó. Lesa meira
 

Vetnisstrætó verður með í Hjólalestinni á morgun - 4.5.2005

Heilsu- og umhverfisátakið Hjólað í vinnuna hófst með pompi og pragt í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í fyrradag en á morgun fylkja hjólareiðamenn liði úr Nauthólsvík í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í fylgd vetnisvagns frá Strætó. Strætó býður síðan fría ferð þaðan að dagskránni þar lokinni. Strætó er einn af samstarfsaðilum átaksins. Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri tók þátt í opnunardagskránni með hressilegu ávarpi og sem forsöngvari fjöldasöngs ásamt Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra og fleirum. Lesa meira
 

Ísland á iði – hjólaðu eða taktu strætó í vinnuna! - 28.4.2005

Strætó er einn af samstarfsaðilum heilsuátaksins Hjólað í vinnuna sem stendur yfir dagana 2.-13. maí næstkomandi að báðum dögunum meðtöldum. Þátttakendur geta valið hvort þeir hjóla í vinnuna eða taka strætó og er þá skráð sú vegalengd sem gengin er til og frá stoppistöð. Hjólað í vinnuna er fyrirtækjasamkeppni á vegum hvatningarverkefnis Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ísland á iði. Keppnin fer nú fram í þriðja sinn en Strætó hefur ekki áður tekið þátt í verkefninu. Lesa meira
 

Nýju vagnarnir reynast vel þrátt fyrir barnasjúkdóma - 25.4.2005

Reynslan af nýju Irisbus vögnunum sem komu á göturnar fyrr á árinu er almennt góð þótt í ljós hafi komið að lagfæra þurfi ýmis atriði sem teljast til barnasjúkdóma. Steindór Steinþórsson, deildarstjóri í akstursdeild, segir ekkert nýtt að fram komi athugasemdir þegar nýjar tegundir strætisvagna eru teknar í notkun. Menn þurfi ávallt nokkurn tíma til að venjast þeim. Inga Fanney Jónasdóttir, vagnstjóri á leið sex, segir gott að keyra nýju vagnana, þeir séu hljóðlátir, vinni vel og séu fljótir að hitna. Hins vegar þurfi að færa ýmis atriði til betri vegar. Lesa meira
 

Kona á ný í sigursælt lið Strætó í ökuleikni - 15.4.2005

Sex manna keppnislið Strætó í ökuleikni vagnstjóra vegna Norðurlandamótsins í sumar hefur verið valið og telst meðal annars til tíðinda að kona náði sæti í liðinu að þessu sinni eftir langa fjarveru kvenna frá liðinu. Norðurlandamótið verður haldið hér á landi 4. júní með þátttöku strætisvagnabílstjóra frá Ósló, Kaupamannahöfn, Stokkhólmi og Helsinki, auk íslensku keppendanna sem hafa átt góðu gengi að fagna á undanförnum árum. Þeir hafa unnið liðakeppnina þrjú undanfarin ár.

Lesa meira
 

Björk Vilhelmsdóttir er nýr formaður stjórnar Strætó - 18.3.2005

Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi hefur verið kjörin formaður stjórnar Strætó bs. en hún tók sæti í stjórn fyrir hönd Reykjavíkurborgar um áramót í stað Guðjóns Ólafs Jónssonar. Þá hefur Guðmundur Rúnar Árnason tekið sæti í stjórn fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar í stað Kristjáns Bersa Ólafssonar. Fram kom á stjórnarfundi í síðustu viku að 56,5 milljóna króna afgangur varð af rekstri Strætó á síðasta ári miðað við áætlun.

Lesa meira
 

Þjónusta í Vallahverfi og breytt akstursleið í Grafarholti - 17.3.2005

Fram að gildistöku á nýju leiðakerfi næsta sumar hefur verið sett upp þjónusta til bráðabirgða við Vallahverfið í Hafnarfirði. Jafnframt hafa verið gerðar breytingar á akstursleiðum í Grafarholti vegna stækkunar byggðarinnar og verður nú ekið inn að Biskupsgötu. Samfara þessu verða breytingar á tímatöflum leiðar 7.

Breytingarnar tóku gildi föstudaginn 18. mars.

Lesa meira
 

Akstur um bænadaga og páska - 16.3.2005

Þjónustan verður með hefðbundnu sniði um páskana.

Skírdagur, 24. mars:

Akstur eins og á sunnudögum.

Föstudagurinn langi, 25. mars:

Akstur hefst um kl. 13:00 og ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.

Laugardagurinn 26. mars:

Ekið samkvæmt laugardagsáætlun.

Páskadagur, 27. mars:

Akstur hefst um kl. 13:00 og ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.

Annar í páskum, 28. mars:

Akstur eins og á sunnudögum.

Lesa meira

 

Rekstur vetnisvagnanna gefur góða raun - 7.3.2005

Vetnisvagnarnir hafa staðið sig prýðilega frá því þeir komu á göturnar haustið 2003. Bílstjórarnir bera þeim vel söguna og viðhald hefur verið í lágmarki. Þeir eru miklu hljóðlátari og útblástur frá þeim er enginn nema dálítil hrein gufa við vissar aðstæður, segir Steindór Steinþórsson, deildarstjóri í akstursdeild Strætó.

Lesa meira

 

Nýtt leiðakerfi tekur gildi 12. júní 2005 - 25.2.2005

Stjórn Strætó bs. hefur nú ákveðið að gildistaka nýja leiðakerfisins verði sunnudaginn 12. júní 2005. Þann dag mun því nýtt leiðakerfi leysa af hólmi núverandi leiðakerfi. Nýja leiðakerfið tekur mið af höfuðborgarsvæðinu sem einni heild.

Lesa meira
 

Frítt í safnastrætó á safnanótt - 17.2.2005

Strætó hefur sett upp sérstaka safnaleið sem fer milli safna í Reykjavík á safnanótt frá klukkan sex síðdegis til miðnættis föstudaginn 18. febrúar. Safnanóttin er hluti af vetrarhátíð sem nú stendur yfir í höfuðborginni. Frítt verður í safnastrætóinn sem ekur hring milli safna bæði réttsælis og rangsælis. Unnendur lista og menningar ættu því ekki að vera í vandræðum með að komast hratt og örugglega á milli þeirra safna sem þeir hyggjast skoða og hvetur Strætó þá til að nota þjónustuna. Sjá tímatöflu og leiðarlýsingu á korti sem birtist þegar valið er að lesa meira.

Lesa meira
 

Biðskýli kemur í stað gömlu skiptistöðvarinnar í Kópavogi - 16.2.2005

Gamla skiptistöðin á Kópavogshálsi skemmdist svo mikið í eldi síðastliðinn sunnudag að ekki er talið svara kostnaði að gera við hana. Hún verður því rifin en biðskýli verður sett á svæðið svo farþegar geti skýlt sér fyrir veðri og vindum uns ný aðstaða verður tekin í notkun. Vagnstjórar fá aðstöðu til bráðabirgða í vinnuskúr á vesturbarmi gjárinnar.

Lesa meira

 

Strætó fær fyrstu fimm nýju vagnana frá BL - 9.2.2005

Það eru mikil tímamót hjá Strætó nú þegar við höfum fengið afhenta fyrstu fimm vagnana af þrjátíu sem við höfum keypt af B&L. Þessi umfangsmesta endurnýjun á vagnaflotanum frá upphafi er liður í stórsókn okkar um þessar mundir til þess að bæta þjónustu okkar við farþega og bjóða fleirum að nota strætó, sagði Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó, þegar hann tók við fimm nýjum og glæsilegum Irisbus strætisvögnum í dag. Afhendingin fór fram að viðstöddum framkvæmdastjórum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira

 

Starfsmenn leggja drög að strætóminjasafni - 2.2.2005

Við höfum lengi rætt um hvílík synd það er að fyrirtækið skuli ekki eiga fleiri gamla bíla og aðra muni sem tengjast sögu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Bíllinn sem við fengum austur í Neskaupstað er Volvo B59 frá 1973, fyrsti sjálfskipti vagninn sem Strætisvagnar Reykjavíkur eignuðust. Við gerum okkur vonir um að geta lagfært hann og afhent Strætó hann síðan sem vísi að minjasafni. En tíminn verður að leiða í ljós hvað verður úr hugmynd okkar um stofnun safnsins, segir Hallgrímur P. Gunnlaugsson varðstjóri við bus.is.

Lesa meira
 

Þjónusta Strætó í Vatnsendahverfi - 7.1.2005

Fram að gildistöku á nýju leiðakerfi næsta sumar hefur verið sett upp þjónusta til bráðabirgða við Vatnsendahverfið í Kópavogi. Um er að ræða 5 ferðir daglega virka daga, þ.e. tvær morgunferðir, tvær síðdegisferðir og ein kvöldferð. Næsta sumar er síðan gert ráð fyrir aukinni þjónustu í hverfinu og þjónustan samræmd annarri þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.  Lesa meira
 


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica