hvert viltu komast...
klukkan er 21:53


Fréttir

Kynning á nýja leiðakerfinu hlaut góðar viðtökur á skiptistöðvum - 23.9.2004

Fjöldi fólks gaf sig á tal við starfsfólk Strætó bs. þar sem það kynnti nýtt leiðakerfi á skiptistöðvum Strætó í dag. Var spurningum svarað með hjálp skjámynda og bæklingur um nýja leiðakerfið afhentur. Ráðgert er að taka leiðakerfið í notkun síðar í vetur. Með nýju leiðakerfi Strætó bs. verður í fyrsta sinn komið á sameiginlegu, samræmdu leiðakerfi almenningssamgangna fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Markmiðið er að efla almenningssamgöngur þannig að þær verði raunhæfur valkostur fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Lesa meira
 

Evrópska samgönguvikan og Strætó - 20.9.2004

Strætó tekur þátt í dagskrá evrópsku samgönguvikunnar. Þriðjudaginn 21. september verða starfsmenn strætó á skiptistöðvum okkar og kynna nýja leiðakerfið, kl. 14 - 18.  Samgönguvikunni lýkur síðan með bíllausa deginum miðvikudaginn 22. september, og er af því tilefni frítt í strætó þann dag.  Lesa meira
 

Stærsti kaupsamningur Strætó bs. - 10.9.2004

Strætó bs. undirritaði í dag samning við B&L um kaup á 30 strætisvögnum frá Irisbus. Um er að ræða stærsta kaupsamning sem Strætó bs. hefur gert. Jafnframt er samningurinn sá stærsti sinnar tegundar frá 1968. Þá keyptu Strætisvagnar Reykjavíkur (SVR) 30 vagna vegna hægri umferðar sem þá var tekin upp. Lesa meira
 

Lokatillaga nýja leiðakerfisins nú tilbúin - 22.8.2004

Nú er lokið vinnu við hönnun nýja, heildstæða leiðakerfisins, sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur og mánuði. Eftir víðtækt samráðs- og kynningarferli hefur tillagan nú verið lögð fram til kynningar í endanlegri mynd. Lesa meira
 

Kaup á 30 nýjum strætisvögnum og 2 metanvögnum samþykkt - 22.8.2004

Stjórn Strætó bs. samþykkti á fundi sínum þ. 13. ágúst 2004 að ganga til samninga við Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf (B&L) um kaup á 30 nýjum Iris strætisvögnum. Samningurinn gerir ráð fyrir að vagnarnir verði afhentir á næstu 3 árum, þ.e. 10 vagnar á ári. Þá var einnig samþykkt að kaupa 2 metanknúna vagna af Heklu hf.

Lesa meira
 

Maraþon og Menningarnótt - 16.8.2004

Vegna Reykjavíkurmaraþons og Menningarnætur laugardaginn 21. ágúst n.k. mun akstur strætisvagna taka nokkrum breytingum í miðborginni. Akstur á öllu leiðakerfinu verður auk þess framlengdur fram yfir kl. 1 um nóttina. Lesa meira
 

Norðurlandameistarar þriðja árið í röð - 21.6.2004

Keppnislið Strætó bs. sigraði á Norðurlandameistaramóti í ökuleikni strætisvagnstjóra, sem haldið var í Osló 19. júní. Þetta er þriðja árið í röð sem liðið vinnur þennan eftirsótta titil.  Lesa meira
 

Lokun Suðurgötu - breytt akstursfyrirkomulag - 18.6.2004

Í sumar verður ráðist í gagngerar endurbætur á Suðurgötu í Reykjavík. Gatan verður að mestu lokuð allt sumarið, og því breytast akstursleiðir strætó á framkvæmdatímanum.  Biðstöðin í Vonarstræti á móts við Ráðhúsið verður ekki í notkun á meðan á framkvæmdum þessum stendur.  Lesa meira
 

Gildistöku nýja leiðakerfisins frestað til haustsins - 8.6.2004

Stjórn Strætó bs. hefur nú ákveðið að fresta gildistöku nýja leiðakerfisins, og er nú stefnt að upptöku þess í október n.k. Ástæða frestunarinnar er einkum að ekki næst að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir á tilsettum tíma.

Lesa meira

 

Tillaga að nýju leiðakerfi nú aðgengileg á vefnum - 6.4.2004

Nú hefur tillaga að nýju leiðakerfi Strætó bs. verið sett hér inn á vefinn, þar sem gefst kostur á að skoða tillöguna eins og hún lítur út nú. Áætlað er að nýja leiðakerfið taki gildi í ágúst 2004. Við hvetjum alla sem áhuga hafa til að kynna sér tillöguna, og jafnframt að senda okkur ábendingar, fyrirspurnir eða athugasemdir. Lesa meira
 

Nýtt leiðakerfi Strætó kynnt fyrir íbúum Laugardals - 18.3.2004

Þriðjudaginn 16. mars hélt Hverfisráð Laugardals ásamt Strætó bs. opinn samráðsfund, í félagsheimili Þróttar, með íbúum Laugardals um nýtt leiðakerfi Strætó bs. Lesa meira
 

Afkoma Strætó bs 2003 umfram væntingar - 27.2.2004

Stjórn Strætó bs. samþykkti ársreikning byggðasamlagsins á fundi sínum 27. febrúar 2004. Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð um tæpar 90 miljónir króna, og er sú besta frá því starfsemin hófst um mitt ár 2001. Lesa meira
 

Vetnisvagnar nú á fleiri leiðum - 23.2.2004

Frá því akstur vetnisvagnanna hófst hafa þeir einungis verið í akstri á leið 2. Nú er komið að því að prófa þá á fleiri leiðum. Lesa meira
 

Fyrirmyndarforvarnastarf - 23.2.2004

Tvö forvarnaverkefni á vegum Forvarna- og fræðsludeildar lögreglunnar í Reykjavík hafa verið valin sem dæmi um fyrirmyndarverkefni í umferðarfræðslu í Evrópu. Verkefnin sem um ræðir eru Rétt með strætó og Lúlli löggubangsi Lesa meira
 

Ráðgjafinn er góður en ekki gallalaus - 15.2.2004

Ráðgjafinn á vef Strætó bs. hefur nú verið í notkun um nokkurra mánaða skeið. Stöðugt hefur verið unnið að endurbótum á honum, til að tryggja að hann virki eins vel og unnt er.  Nú óskum við eftir ábendingum notenda ef þeir telja að villur séu í ráðgjafanum. Lesa meira
 

Rabb Svanhildar Konráðsdóttur - 21.1.2004

Svanhildur Konráðsdóttir ritaði rabb grein um bíla og

almenningssamgöngur í Lesbók Morgunblaðsins 27. desember 2003. Hún hefur veitt okkur góðfúslegt leyfi sitt til að birta greinina hér á vefnum.

Lesa meira

 


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica