Nýtt leiðakerfi fyrir almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu verður tekið í notkun næsta sumar. Þar með verður í fyrsta skipti komið á sameiginlegu leiðakerfi á þessu svæði. Meginmarkmið nýja leiðakerfisins er að bæta þjónustuna og auka notkun strætisvagna
Lesa meiraRáðgjafinn á vef Strætó bs. hefur nú verið í notkun í nokkra mánuði. Margir nýta sér þjónustu ráðgjafans, eins og sjá má af heimsóknum á vefinn. Einhverjir hnökrar hafa komið upp í notkun hans, en stöðugt er unnið að endurbótum og lagfæringum.
Lesa meiraNú hillir undir lok gatnaframkvæmda í tengslum við athafnasvæði Strætó bs. í Mjódd, en framkvæmdir þessar voru vegna nýju mislægu gatnamótanna við Stekkjarbakka.
Lesa meiraMeð tilkomu nýju mislægu gatnamótanna á á mótum Stekkjarbakka og Reykjanesbrautar hefur akstursleið leiðar 112 nú verið breytt líttillega.
Lesa meiraNú er þriðji og síðasti vetnisvagninn kominn til landsins. Með því að taka sér far með leið 2 næstu vikurnar eru góðar líkur á að vagninn sé knúinn vetni.
Lesa meiraNú styttist í að farþegar Strætó bs. geti tekið sér far með vetnisvögnum, fyrst um sinn á leið 2.
Lesa meiraEvrópsk samgönguvika var haldin í fyrsta skipti hér á landi dagana 16. – 22. september. Af því tilefni var efnt til fjölda viðburða en með þeim tókst að vekja töluverða athygli á samgöngu- og umhverfismálum.
Lesa meiraSunnudaginn 5. október, afhenti Íslensk NýOrka ehf. Strætó bs. lykla að tveimur af þremur efnarafalknúnum Mercedes Benz vetnisvögnum sem verða í almennum akstri Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu næstu tvö árin og verða fljótlega teknir í almennan akstur á leið 2
Lesa meiraÍ tilefni af komu vetnisstrætisvagna til landsins bjóða Strætó og Skeljungur til fjölskylduhátíðar sunnudaginn 5. október kl. 13-16. Skemmtunin hefst við aðalstöðvar Strætó bs. í Mjódd kl. 13 með því að Lilli klifurmús og Mikki refur úr Dýrunum í Hálsaskógi skemmta börnunum. Meðal þess sem verður á fjölbreyttri dagskrá í stóru hátíðartjaldi í Mjódd eru ýmis söngatriði.
Lesa meiraÞá er loksins komið að því! Fyrstu vetnisstrætisvagnarnir sem Strætó bs. fær til afnota eru komnir til landsins. Þeir verða teknir í notkun sunnudaginn 5. október. Þá hefst nýr og merkur kafli í sögu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Lesa meiraEvrópsku samgönguvikunni lauk með bíllausa deginum mánudaginn 22. september. Þann dag var frítt í strætó. Skólabörn úr grunnskólunum í Breiðholti glöddu strætófarþega þennan dag með söng og ljóðaflutningi. Strætó bs. þakkar öllum þeim fjölmörgu sem glöddu strætófarþega þennan dag, sem og þeim sem tóku sér far með strætó á bíllausa deginum 2003.
Lesa meiraReykjavíkurborg tekur nú þátt í bíllausa deginum í þriðja skipti og er því meðal þeirra 1003 borga og bæja sem taka þátt í ár. Bíllausi dagurinn 22. september er þungamiðja Evrópskrar samgönguviku og jafnframt lokapunktur hennar, en síðasta vika hefur verið tileinkuð ýmsum hliðum borgarumferðar.
Lesa meiraÍ tilefni hjólreiðadagsins voru nýjar merkingar á hjólreiða- og göngustígum afhjúpaðar kl. 16:30 í dag. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, afhjúpaði merkingarnar við Fossvogsbrú (göngubrúna við enda Suðurhlíðar). Lesa meira
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar og formaður samgöngunefndar, setti Evrópska samgönguviku 2003 í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra flutti ávarp og opnaði nýjan vef um mengunarmælingar. Lesa meira
Ákveðið hefur verið að hætta akstri að biðstöð við Nauthólsvík miðvikudaginn 10. september í stað 30 september eins og segir í Leiðabók Strætó bs. Leið 7 mun í vetraráætlun hafa viðkomu á biðstöð við Hótel Loftleiðir í ferðum að og frá Lækjartorgi eins og verið hefur.
Lesa meiraDagana 16. til 22. september tekur Reykjavíkurborg þátt í Evrópsku samgönguvikunni. Í ár taka 228 borgir víðsvegar í Evrópu þátt í verkefninu. Meginþema vikunnar að þessu sinni verður „aðgengi fyrir alla“ í tengslum við Evrópuár fatlaðra.
Lesa meiraKeppnislið Strætó bs. gerði sér lítið fyrir og vann Norðurlandameistaratitilinn í ökuleikni strætisvagna laugardaginn 9. ágúst. Keppnin var haldin í Svíþjóð. Keppnisliðið varði þannig titilinn, því okkar menn unnu einnig keppnina árið 2002. Til hamingju!
Lesa meiraStrætó bs. býður þátttakendum í sumarleik Strætó til sumargleði á Ylströndinni í Nauthólsvík, laugardaginn 19. júlí kl. 14.
Lesa meiraÞátttakendur í sumarleik Strætó bs. eiga möguleika á að vinna dagsferð fyrir tvo til Kulusuk á Grænlandi og dagsferð um Kárahnjúkasvæðið með Flugfélagi Íslands. Í verðlaun eru einnig sex rauð kort með Strætó og tíu miðar á söngleikinn Grease. Sumarleikur Strætó bs. er haldinn í samstarfi við Flugfélag Íslands og Skjá einn
Lesa meiraNýverið var undirritaður samstarfssamningur milli Strætó bs. og Latabæjar, þess efnis að börn á aldrinum 6 - 11 ára geti greitt fargjald sitt með Latóseðlum í sumar. Latóhagkerfið verður í gangi tímabilið 19. júní til 31. ágúst í sumar. Lesa meira
Strætó bs. ræður alla jafna nokkurn fjölda sumarstarfsmanna til afleysinga. Allir afleysingamenn sem koma til starfa hjá fyrirtækinu hljóta starfsþjálfun í formi 2ja daga nýliðanámskeiðs, sem haldið er dagana 27. og 28. maí. Á námskeiðinu er víða komið við, fjallað um þjónustu, meðferð vagna, réttindi og skyldur, umferðina, eldvarnir, skyndihjálp, vinnureglur, fargjöld, leiðakerfið og vaktakerfið. Alls sækja 24 nýjir starfsmenn námskeiðið að þessu sinni.
Lesa meiraNýlega voru gerðar þær breytingar, að 2 liðvagnar sem áður voru notaðir á leið 12 og 111 eru nú komnir í þjónustu á leið 140. Alla jafna eru flestir farþegar á leið 140, og þar hefur fram til þessa verið mest þörf á aukavögnum, einkum í morgunferðum. Með þessari breytingu eykst sætaframboð á leið 140 og þar með batnar þjónustan.
Lesa meiraEkið er skv. helgidagaáætlun á 1. maí, Akstur hefst á bilinu 9:30 - 10:00, og er alla jafna ekið á 30 mínútna fresti. Til hamingju með daginn!
Lesa meiraAð aka strætisvagni á höfuðborgarsvæðinu getur verið erfitt og krefjandi, einkum í mikilli umferð og þegar skilyrði eru erfið. Á síðasta vetrardag heiðraði Strætó bs. 17 starfsmenn sína sem hafa náð þeim glæsta árangri að aka án þess að valda tjóni í samfellt 5 ár. Þetta er í 8. skipti sem slíkar viðurkenningar eru veittar, og eru nokkrir starfsmenn sem hlotið hafa þessar viðurkenningar öll árin. Alls voru 14 vagnstjórar og 3 bílstjórar Ferðaþjónustu fatlaðra í þessum hópi í ár. Að auki fengu 69 vagnstjórar viðurkenningarskjal fyrir eins árs tjónlausan akstur.
Lesa meiraÁ sumardaginn fyrsta verður formlega vígð vetnisstöð Skeljungs og Íslenskrar Nýorku. Þetta er fyrsta vetnisstöðin í heiminum sem hönnuð er sem almenningsstöð, og vekur smíði hennar mikla athygli. Síðar í sumar fær Strætó bs. afhenta 3 vetnisvagna, sem munu fá eldsneyti sitt frá þessari stöð.
Lesa meiraStrætó bs. fékk tvö erlend ráðgjafafyrirtæki til að vinna tillögur að nýju leiðakerfi fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Niðurstöður þeirra voru kynntar fyrstu vikuna í apríl. Tillögurnar eru um margt svipaðar, en þó er áherslumunur á milli þeirra. Báðar gera ráð fyrir hraðleiðaneti, auk hefðbundins leiðakerfis. Lögð er áhersla á aukna tíðni á álagstímum, auk þess sem fjöldi skiptinga verða í lágmarki. Hvorug tillagan gerir ráð fyrir að byggð verði ný miðlæg skiptistöð við Kringluna. Lesa meira
Samningurinn markar tímamót í innleiðingu rafræns greiðslukerfis. Gefið verður út sérstakt kort, sem mun nýtast til greiðslu fyrst um sinn í strætó, sundstaði og í skólamötuneytum nokkurra grunnskóla. Efnt verður til verðlaunasamkeppni um nafn á kortið. Gert er ráð fyrir að hið nýja kerfi verði tilbúið um næstu áramót.
Lesa meiraMerk tímamót í áttina að vetnissamfélaginu verða á sumardaginn fyrsta, 24. apríl 2003. Þá verður vígð fyrsta vetnisstöð í heimi sem opin verður almenningi. Ítarleg frétt er birt á heimasíðu shell.com af þessu tilefni.
Lesa meiraMeð nýjum strætóvef opnast nýjir möguleikar fyrir farþega strætó. Auk hefðbundinna upplýsinga um fyrirtækið, starfsemi þess og þjónustu, verður einnig ferðaráðgjafi, þar sem á svipstundu fást tillögur um hvaða leið er best að taka miðað við brottfarar- og áfangastað.
Lesa meiraStjórn Strætó bs. samþykkti fyrir nokkru að fela framkvæmdastjórn að kanna möguleika á sérstakri sumaráætlun. Niðurstaða þeirrar skoðunar var, að unnt væri að ná fram talsverðum sparnaði í rekstri, en að sama skapi yrði þjón
Lesa meiraGrein þessi birtist í Velvakanda í Morgunblaðinu, þriðjudaginn 18. mars 2003. Birt með góðfúslegu leyfi höfundar
Lesa meira