Eigendur og stjórn
Eigendur byggðasamlagsins
Strætó bs. er í eigu Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarneskaupstaðar og Sveitarfélagsins Álftaness.
Stjórn byggðasamlagsins er skipuð einum fulltrúa og einum til vara frá hverju aðildarsveitarfélagi. Fulltrúinn skal vera aðalmaður í sveitarstjórn eða framkvæmdastjóri viðkomandi sveitarfélags. Sömu skilyrði gilda um varamenn sem hver sveitarstjórn tilnefnir.
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og skal formennska skiptast milli aðildarsveitarfélaganna. Kjörtímabil stjórnar er 2 ár.
Eftirtaldir eru aðalmenn í stjórn byggðasamlagsins:
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Hafnarfirði, formaður
- Einar Örn Benediktsson, Reykjavík
- Hjálmar Hjálmarsson,Kópavogi
- Stefán Snær Konráðsson, Garðabæ
- Hafsteinn Pálsson, Mosfellsbæ
- Sigrún Edda Jónsdóttir, Seltjarnarnesi
- Kjartan Örn Sigurðsson, Álftanesi
