hvert viltu komast...
klukkan er 21:40


Reglur fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík

1. gr. - Notendur þjónustunnar

Ferðaþjónusta fatlaðra er ætluð til afnota fyrir þá íbúa Reykjavíkur sem eru:

  1. Hjólastólanotendur.
  2. Blindir og geta eigi notað önnur farartæki.
  3. Ófærir um að nota almenningsvagnaþjónustu vegna annarrar, langvarandi fötlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki.

Þeir sem hafa fengið styrk til bifreiðakaupa frá Tryggingastofnun og þeir sem eru njóta bensínstyrks skulu alla jafna ekki njóta réttar til ferðaþjónustu samkvæmt reglum þessum.

Skilyrði er að fötlun umsækjanda falli að skilgreiningu laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992.

Reglur þessa taka ekki til þeirra sem eru eldri en 67 ára nema þeir verði alvarlega og varanlega hreyfihamlaðir eftir þann aldur. Hafi aðili sem orðinn er 67 ára hins vegar áður fengið þjónustu á grundvelli reglna um Ferðaþjónustu fatlaðra á hann rétt á þjónustunni áfram á meðan þörf krefur.

Reglur þessar eru settar skv. 35. gr. - og 9. gr. - laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992.

2. gr. - Afgreiðsla og mat umsókna

Umsókn um ferðaþjónustu fatlaðra skal senda til þjónustumiðstöðva í því hverfi sem umsækjandi býr. Skal hún metin á grundvelli möguleika umsækjanda til að nýta sér þjónustu almenningsvagna og/eða aðra ferðamöguleika .

Hægt er að afgreiða umsókn tímabundið ef ástæða þykir til. Þegar aðili hefur fengið samþykkta umsókn, getur hann snúið sér beint til rekstraraðila.

Mat umsóknar skal vera í höndum sérstaks starfshóps sem skipaður er af sviðsstjóra Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Í álitamálum skal leita umsagnar trúnaðarlæknis Reykjavíkurborgar.

Ákvörðun um þjónustu er hægt að skjóta til velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

3. gr. - Þjónustutími

Þjónustutími Ferðaþjónustu fatlaðra miðst við akstur almenningsvagna Strætó bs.

4. gr. - Réttur til þjónustu

Ferðir til vinnu, skóla, lækninga og hæfingar ganga fyrir öðrum ferðum. Fjöldi ferða til annarra einkaerinda er háður takmörkunum, en þó aldrei fleiri en 18 ferðir á mánuði. Fjöldi ferða í heild, þ.e. til vinnu skóla, lækninga, hæfingar og einkaerinda getur eigi farið yfir 60 ferðir á mánuði. Heimilt er þó að veita þeim er nota þjónustuna daglega vegna vinnu eða skóla, kost á fleiri ferðum.

Fastar ferðir eru bundnar við atvinnu, nám og hæfingu og skal gera sérstakt samkomulag um þær milli akstursaðila og þess sem þjónustunnar nýtur.

5. gr. - Pantanir/Afpantanir

Tekið er á móti pöntunum alla virka daga milli kl. 8.00 og 16.00 og á laugardögum milli kl. 9.00 og 12.00.

Beiðni um akstur þarf að koma á framfæri með dags fyrirvara. Fyrir mánudaga þarf pöntun þó að berast eigi síðar en á laugardegi.

Frá 1. janúar 2007 verður hægt að óska eftir ferðum samdægurs með a.m.k. 3 klst. fyrirvara. Um þær ferðir fer samkvæmt sérstökum verklagsreglum sem settar verða.

Afpöntun ferðar skal vera með sem mestum fyrirvara helst deginum áður, en í undantekningartilvikum 3 klst. fyrir fyrirhugaða ferð, að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri.

Ef um hópferð er að ræða, skal panta með minnst tveggja sólarhringa fyrirvara. Hópur er fjórir einstaklingar eða fleiri.

6. gr. - Tilhögun ferða

Ferð er skilgreind í reglum þessum sem akstur frá A til B.

Farþegar skulu vera tilbúnir til brottfarar í anddyri brottfararstaðar á umsömdum tíma. Biðtími fyrir farþega skal að jafnaði ekki fara yfir 10 mínútur. Við sérstakar aðstæður skal veita farþega aðstoð við að komast frá heimili sínu í bílinn.

Ekki er beðið á meðan farþegi sinnir erindi sínu.

Bílstjórum er ekki heimilt að sinna sendiferðum fyrir farþega. Farþega sem ekið er til læknis er heimilt að hringja eftir akstri til baka að viðtali loknu, enda var það ekki vitað fyrirfram hve viðtalið tæki langan tíma.

Ferðaþjónusta fatlaðra er sérhæfð þjónusta og þurfa farþegar því að vera viðbúnir töfum eða breytingum á áætlun.

7. gr. - Aðrir farþegar/aðstoðarmenn

Farþegum er heimilt að hafa með sér annan farþega, enda greiði hann sama gjald. Geti farþegi ekki ferðast einsamall, getur ferðaþjónustan krafist aðstoðarmanns með honum. Aðstoðarmaðurinn greiðir ekki gjald fyrir ferðina.

8. gr. - Gjald og þjónustusvæði

Þjónustusvæði markast frá Hafnarfirði í suðri að Kjalarnesi í norðri.

Gjald fyrir hverja ferð skal miðast við hálft almennt gjald hjá Strætó b.s. nú kr. 140.

9. gr. - Samráð og úttekt

Velferðarsvið mun halda samráðsfundi með hagsmunaraðilum tvisvar á ári þar sem m.a. verður farið yfir tölfræðilegar upplýsingar og framkvæmd þjónustunnar. Árlega mun Velferðarsvið Reykjavíkurborgar gera úttekt á framkvæmd reglnanna.

10. gr. - Gildistími

Reglur þessar taki gildi 1. janúar 2006.

Samþykkt í velferðarráði 19. október 2005 og í borgarráði 24. nóvember 2005.

Aftur efst á síðu

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica