Reglur og pantanir á ferðum
Ferðaþjónusta fatlaðra starfar eftir reglum sem samþykktar voru í Velferðarráði 19. október 2005 og staðfestar í borgarráði 24. nóvember 2005.
Áður en hægt er að panta ferð þarf að sækja um þjónustuna. Umsókn skal senda til þjónustumiðstöðvar í hverfi umsækjanda eins og tilgreint er í 2. grein reglnanna.
Tekið er á móti pöntunum um ferðir í síma 540-2740 virka daga kl. 8.00 – 16.00 og á laugardögum kl. 9.00-12.00. Panta þarf ferð með dags fyrirvara.
Fargjald er 140 kr.
