hvert viltu komast...
klukkan er 22:12


Skiptimiðinn

Skiptimiðinn er í eðli sínu farmiði og hann má í reynd nota ótakmarkað á gildistíma hans.  Þannig getur farþegi ferðast eins mikið og hann vill innan þess gjaldsvæðis sem skiptimiðinn gildir á.

Tímatakmörk eru stimpluð á skiptimiðann. Vagnstjórinn afhendir skiptimiða aðeins um leið og fargjald er greitt og mikilvægt er að þú kannir strax hvort tímastimplun er rétt.  Þeir farþegar sem notast við svokölluð tímabilskort (Gul, Græn, Rauð, Blá; Nemakort, o.s.frv.) þurfa ekki að nota skiptimiða, heldur framvísa korti í hvert sinn sem stigið er inn í vagn.

Skiptimiði, innan þess gjaldsvæðis sem hann er útgefin í, gildir í 75 mínútur.  Skiptimiðar útgefnir í vögnum leiða er aka frá gjaldsvæðum 3 og 4 gilda í 120 mínútur (2 klst).

Þú getur skipt milli leiða í einni ferð án þess að greiða fargjald aftur:

  • 2 vagnar: Ef farþegi þarf að nota tvo vagna biður hann vagnstjórann um skiptimiða um leið og hann greiðir fargjald sitt. Skiptimiðinn afhendist síðan vagnstjóra sem fargjald á síðari leiðinni.
  • 3 vagnar: Ef farþegi þarf að ferðast með þremur vögnum í einni og sömu ferðinni skal hann halda skiptimiðanum og afhenda hann í þriðja vagninum.

Ekki er hægt að fá skiptimiða fyrir annan skiptimiða.

 

Fyrir farþega sem hyggjast ferðast frá höfuðborgarsvæðinu til gjaldsvæða 3 og 4 og staðgreiða fargjöld og/eða notast við farmiða, gildir eftirfarandi:

  1. Taki farþegi vagn innan höfuborgarsvæðisins greiðir hann eitt fargjald (280 kr. eða 1 farmiða) í þann vagn og biður um skiptimiða sem gildir á og innan þess gjaldsvæðis sem ferðalag hefst (höfuðborgarsvæðið í þessu tilfelli).
  2. Þurfi farþegi að ferðast með fleirum en einum vagni innan höfuðborgarsvæðisins, SÝNIR farþegi vagnstjóranum skiptimiðann í vagni nr. 2 og/eða 3 og/eða eftir þörfum. 
  3. Þegar farþegi kemur í vagn á leiðum er aka til gjaldsvæða 3 og 4, afhendir hann vagnstjóra skiptimiðann sem greiðslu fyrir fyrsta gjaldsvæðið (sbr. lið 1) og greiðir tvö fargjöld til viðbótar (eða samtals 3) ferðist hann til gjaldsvæðis 3 eða þrjú fargjöld til viðbótar (samtals 4) ferðist hann til gjaldsvæðis 4.
    • Skiptimiði, útgefin á gjaldsvæðum 3 eða 4, gildir einungis sem framhaldsferð innan gjaldsvæðis sem ferðast er til.  Miðinn gildir ekki sem fargjald með sömu leið til baka.  Ástæðan er sú að þegar að endastöð vagns er náð eiga farþegar að yfirgefa vagninn og fara inn í hann aftur.  Þá gildir skiptimiðinn skv. því sem að framan greinir.

 

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica