hvert viltu komast...
klukkan er 22:04


Reglur og skilmálar

Almennir skilmálar

Farmiðar og tímabilakort eru seld á sölustöðum gegn staðgreiðslu.
Farmiðar og kort, sem keypt hafa verið, eru ekki innleysanleg.

Tímabilakort: Gul, græn, rauð og blá kort og almenn afsláttarkort
gilda fyrir handhafa.

Afsláttarfargjöld sérhópa gilda fyrir tiltekna hópa eins og sérákvæði
tilgreina.
Börn, 6-11 ára, eiga kost á sérstökum farmiðum.
Það á einnig við um ungmenni, 12-18 ára og þá sem eru 67 ára og
eldri. Sama á við um öryrkja, sem búa við það sem skilgreint er
sem varanleg full örorka, þ.e. 75% örorka.

Vagnstjóri getur óskað eftir að farþegi staðfesti rétt sinn til að nota
afsláttarfargjald. Staðfestingar má einnig óska við kaup á afsláttarmiðum.

Um útgáfu afsláttarkorta / tímabilakorta gildir eftirfarandi:
gulu, grænu, rauðu og bláu kortin eru tímabilakort, með upphafs- og loka-
dagsetningu.

Kortin eru gild frá og með tilgreindum upphafsdegi til og með tilgreinds
lokadags. Alla jafna eru útgáfudagar rauðra og grænna
korta sömu og söludagar eða degi síðar. Á því getur verið undantekning ef
nýtt kort er tengt gildandi korti. Gula kortið gildir í 14 daga. Græna kortið
gildir í einn mánuð og er dagafjölda breytilegur eftir mánuðum. Upphafsdagur
getur verið hvaða dagur sem er. Sama gildir um rauða kortið, þó þannig að
þar koma þrír mánuðir í stað eins mánaðar, eins og á við um græna kortið.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica