hvert viltu komast...
klukkan er 22:38


Greiðsla fargjalda

Staðgreidd fargjöld

Til staðgreiddra fargjalda teljast mynt og seðlar, annars vegar, og farmiðar hins vegar.  Skiptimiði sem tekinn er til að halda ferð áfram yfir í annan/þriðja vagn telst til farmiða.  Bæði þessi fargjaldaform eiga það sameiginlegt að þau gilda aðeins í eitt skipti og skal setja í peningabaukinn þegar stigið er inn í vagninn, þó með þeirri undantekningu að skiptimiði skal afhendast vagnstjóra á síðasta legg ferðalagsins (nánari reglur má sjá um notkun skiptimiða undir flipanum "Skiptimiðar" hér til vinstri).

Farþegi skal ávallt gæta þess að gefa vagnstjóra tækifæri til að sannreyna að rétt fargjald sé reitt af hendi.  Þannig skal mynt látin falla ofan í baukin, ein af annarri eða jafnvel sýnd í lófa áður en hún er látin falla í baukinn.  Hið sama gildir um farmiða og þess gætt að vagnstjóri eða eftirlitsmaður hafi tækifæri til að sannreyna hverskonar farmiði er notaður sem greiðsla og því mega þeir ekki vera krumpaðir, máðir eða upprúllaðir þegar þeir eru látnir í baukinn.  Hið sama gildir um skiptimiða.

Okkar leiðarljós er "allir með vagninum" en telji vagnstjóri, eða eftirlitsmaður, að rétt fargjald hafi ekki verið innt af hendi eða gróflega á framangreindum tilmælum brotið, kann það að leiða til þess að farþega verði vísað út úr vagninum.

Hvernig skal staðgreiða fargjöld þegar ferðast er milli gjaldsvæða?

Ferðast frá gjaldsvæði 1:

  • Farþegi er stígur inn í vagn innan höfuðborgarsvæðisins (gjaldsvæði 1) skal einungis greiða eitt fargjald í þeim vagni.  Hyggi farþeginn á frekara ferðalag með öðrum innanbæjarvagni og/eða utanbæjarvagni, skal hann biðja um skiptimiða og framvísa honum þar til hann kemur til brottfararstaðar utanbæjarvagnsins.
  • Þegar farþegi stígur inn í utanbæjarvagn (leiðar 51, 57 og 58) þá skal framvísa skiptimiðanum og afhenda hann vagnstjóra - en skiptimiðinn gildir þannig sem greiðsla á fyrsta gjaldsvæði utanbæjarvagna (í þessu tilfelli gjaldsvæði 1 skv. framansögðu).
  • Í utanbæjarvagninum skal farþegi inna af hendi tvenn fargjöld til viðbótar ætli hann að ferðast til gjaldsvæðis 3 (eða þrjú fargjöld alls með upphaflegu fargjaldi), eða þrenn fargjöld til viðbótar ætli hann að ferðast til gjaldsvæðis 4.
    • Viðbótarfargjöld greiðast með tveimur til þremur staðgreiðslufargjöldum (2 eða 3 x 280 kr. eða 2 til 3 farmiðum).  Sjá nánari upplýsingar um notkun skiptimiða undir flipanum "Skiptimiðar" í bláa borðanum hér til vinstri.

Ferðast frá gjaldsvæðum 3 og 4:

  • Farþegi er stígur inn í vagn á gjaldsvæði 3 eða 4 skal greiða fullt fargjald, þ.e. þrjú fargjöld sé ferðast frá gjaldsvæði 3 eða fjögur fargjöld sé ferðast frá gjaldsvæði 4.
  • Ætli farþegi að ferðast frekar með innanbæjarvögnum á höfuðborgarsvæðinu skal hann taka skiptimiða og framvísa honum í innanbæjarvögnum.  Skiptimiða skal afhenda vagnstjóra vagns á síðasta legg ferðalagsins.

Ferðast á milli gjaldsvæða 3 og 4:

  • Farþegi sem ætlar einungis að ferðast á milli gjaldsvæða 3 og 4 greiðir aðeins eitt fargjald.  Farþegi á kost á að komast til baka á skiptimiða, innan gildistíma hans.

Tímabilskort

Til tímabundinna fargjalda teljast annars vegar handhafa kort og hins vegar persónuleg kort.  Þau eru frábrugðin staðgreiðslufargjöldum að því leyti að þeim má framvísa aftur og aftur á gildistíma þeirra, sem er prentaður með áberandi hætti á kortin.  Gildistími kortanna eru misjafnlega langur (sjá nánari upplýsingar undir flipanum "Kaupa kort / Nemakort" . 

Ath. að ekki þarf að reiða sig á notkun skiptimiða þegar farþegi hefur tímabilskort undir höndum - farþegi sýnir einfaldlega kortið þegar stigið er inn í hvern vagn.

 

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica