klukkan er 10:22


Ný strætóleið; Hlemmur - Nauthólsvík

 

Ný strætóleið

AKSTUR um nýja strætóleið hefst þann 11. janúar nk. Þá mun einn vagn aka á milli nýbyggingar Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík og Hlemms. Ætlunin er að tryggja nemendum góða tengingu við aðrar helstu leiðir strætó sem liggja um Gömlu Hringbraut og Hlemm. Leið 16 mun aka þessa leið og kemur hún til viðbótar núverandi leið 19 sem ekur á hálftíma fresti í Vatnsmýrina að Nauthól. Með þessu móti verða í boði ferðir á 15 mínútna fresti fyrir nemendur og kennara.

Helstu biðstöðvar á leið 16 eru eftirtaldar: Hlemmur - Snorrabraut - Landspítalinn - BSÍ - Hótel Loftleiðir - Nauthólsvík.

Tímatöflu fyrir leið 16 er hægt að sjá með því að smella hér.

 



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica