klukkan er 11:48


Nýjung á strætó.is - greiðsluskipting

 

Strætó er stöðugt að þróa og bæta þjónustuna við farþega sína. Nú er hægt að skipta greiðslunum þegar strætókort eru keypt á vefnum fyrir 3.000 kr. eða meira. Það ætti sérstaklega að koma sér vel fyrir þá sem þurfa að kaupa kort sem gilda til lengri tíma og eiga erfitt með að reiða fram eingreiðslu, t.d. fyrir 9 mánaða kort eða á dýrara gjaldsvæði. 

Þeir sem áhuga hafa á að nýta sér þenna kost við kaup á strætóferðum geta farið inn á strætó.is og keypt sér kortið eins og þeir eru vanir. Eini munurinn núna er sá að auk eingreiðslu fyrir kortið gefst kostur á að velja greiðsluskiptingu þegar gengið er frá kaupunum. 

þeir sem velja greiðsluskiptingu þurfa að athuga að með því bætist við vaxtakostnaður, færslugjöld og lántökugjald sem fer eftir gjaldskrá Valitors. Eftir sem áður er hægt að ganga frá kaupunum með eingreiðslu



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica