Esjudagurinn - taktu strætó!
Laugardaginn 12. júní verður Esjudagurinn haldinn hátíðlegur og Strætó lætur ekki sitt eftir liggja, svo göngugarpar geti komist á staðinn.
Leið 57 ekur samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun að Esjurótum á Esjudaginn, sex ferðir fram og til baka yfir daginn. Fyrstu ferðirnar eru frá Háholti í Mosfellsbæ kl. 12.45 og frá Akratorgi á Akranesi kl. 11.39. Nánari tímasetningar er hægt að skoða undir laugardagsáætlun á leið 57 undir kaflanum Leiðakerfi hér ofar á síðunni.
Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt að fjölmenni er við Esjuna þennan dag og mikill fjöldi bíla á bílastæðunum við Esjurætur. Við slíkar aðstæður getur verið erfitt fyrir strætó að komast að biðstöð sinni en við því verður brugðist með því að hafa starfsmenn á staðnum sem stýra umferðinni. Gestir á svæðinu eru beðnir að sýna tillitssemi og leggja ekki bílum sínum við hringtorgið þar sem strætó ekur að biðstöð sinni.
