Sumaráætlun tekur gildi 30. maí
Helstu breytingar frá vetraráætlun:
Allir vagnar sem óku á 15 mín. tíðni í vetur fara yfir á 30 mín. tíðni í sumar. Um er að ræða leiðar nr. 1, 2, 3, 4, 6, 11, 12, 14 og 15.
Leið 18 mun aka upp og niður Grensásveginn milli Bústaðavegar og Miklubrautar í stað þess að aka allan Bústaðaveginn.
Leið 19 ekur frá Nauthól einni mínútu fyrr í nýrri sumaráætlun.
Brottfarartími leiðar 51 breytist í fyrstu tveimur ferðunum frá Selfossi, á virkum dögum.
Ein ferð er núna ekin milli Mosfellsbæjar og Akraness á sunnudögum. Ekið er kl. 16:45 frá Háholti og 17:39 frá Akranesi.
Nýjar leiðabækur eru fáanlegar á sölustöðum Strætó og kosta 50 krónur. Heimasíða Strætó verður uppfærð á allra næstu dögum og verða þá aðgengilegar upplýsingar um sumaráætlun þar.
