klukkan er 11:45


Menningarnótt

TÍÐNI FERÐA Á MENNINGARNÓTT

Eftirtaldar leiðar munu aka samkvæmt tíðni og tímatöflum sem tíðkast venjulega á virkum dögum: 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 13, 14, 15, 17, 18 og 19. Um kvöldið verður áfram ekið á þessum leiðum eins og um dagtíma væri að ræða, þ.e. á hálftíma fresti.   

Síðustu ferðir frá Hlemmi og Vonarstræti; um kl. 01:00

 

FARMIÐASALA - AUKIN ÞJÓNUSTA

Á Hlemmi verður farmiðasalan höfð opin lengur en hefðbundið er, opið verður þar til kl. 01.00 eftir miðnætti. Í Vonarstræti verður sett upp aðstaða fyrir upplýsingar til farþega og farmiðasölu.

Auk hefðbundinna farmiðaspjalda og dagpassa verður í tilefni dagsins hægt að versla staka farmiða, bæði á Hlemmi og í Vonarstræti.

 

AKSTURSLEIÐIR STRÆTÓ LAUGARDAGINN 22. ÁGÚST - sjá einnig kort hér.

 LOKAÐAR GÖTUR ALLAN DAGINN

Vegna maraþonshlaups munu eftirtaldar götur verða lokaðar allan daginn: Sæbraut (milli Lækjargötu og Kringlumýrarbrautar)  – Geirsgata - Mýrargata – Hverfisgata – Lækjargata.

 LOKAÐAR GÖTUR KL. 06:45 – 14.00

Vonarstræti, Fríkirkjuvegur, Skothúsvegur og Sóleyjargata. Það verður því ekki mögulegt að komast með strætó í sjálfan miðbæinn. Á þessum tíma aka vagnar á leið að miðbænum frá Hlemmi um Snorrabraut og Hringbraut að Melatorgi og snúa þar við á leið út í hverfi. Sami háttur verður þegar ekið er frá hverfum að Hlemmi, þá er tekinn snúningur á Melatorgi.

Vagnar aka venjulega leið um Vesturbæ en aka ofan nefnda leið að og frá Hlemmi.

EFTIR KL. 14:00 VERÐUR BREYTING

Þá munu vagnar á leið út í hverfi frá Hlemmi aka af gömlu Hringbraut um Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg, Vonarstræti, Suðurgötu og aftur að Hringbraut.

Á sama hátt munu vagnar sem eru á leið að Hlemmi aka um Skothúsveg, Sóleyjargötu, gömlu Hringbraut og Snorrabraut.

Leið 14:

Mun aka um Ánanaust og Hringbraut í báðar áttir.

Leiðir 5 og 12:

Munu aka hefðbundnar leiðir um Sæbraut og Kleppsveg, að og frá Hlemmi.

Leið 5 mun þó ekki aka um Klettagarða.

Meginmál

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica