Biðstöð við Esjuna óvirk
Laugardaginn 27. júní verður Esjudagurinn haldinn hátíðlegur.
Samkvæmt reynslu undanfarinna ára má búast við miklu fjölmenni og fjölda bíla á svæðinu. Við svoleiðis aðstæður kemst Strætó ekki að biðstöð sinni og verður því að leggja hana af þennan dag. (biðstöð óvirk í báðar áttir).
Af öryggis ástæðum er ekki hægt að hleypa farþegum í eða úr vagninum annars staðar en á merktum biðstöðvum og eru farþegar vinsamlegast beðnir að virða það.
