hvert viltu komast...
klukkan er 01:00


Akstur 17. júní 2009

Akstursbreytingar á korti

Þann 17. júní verður ekið eins og á laugardegi. Auk þess verður bætt við ferðum þannig að leiðir 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 13, 14, 15, 17, 18 og 19 aka á hálftíma fresti fram undir miðnætti. (ath. að leið 17 ekur aðeins til kl. 19:20). Breytingar verða á akstursleiðum strætisvagna í miðbæ Reykjavíkur vegna hátíðarhalda.

Vegna hátíðahaldanna verður akstur vagna Strætó bs. með eftirfarandi hætti:

Akstursleiðir fram til kl. 18:00.  

Leiðir 1,3, 6, 11, 12, 13,  sem aka frá Hlemmi í vestur: Snorrabraut – Sæbraut – Geirsgötu – Mýrargötu – Ánanaust - Hringbraut.

Leið 14 ekur frá Granda: Ánanaust, Hringbraut, Snorrabraut að Hlemmi. Þessi akstursleið gildir einnig á leið að Granda.

Biðstöð verður sett upp við Geirsgötu gegnt Kalkofnsvegi.

Að Hlemmi aka sömu leiðir:  Hringbraut  - Ánanaust - Mýrargötu  - Ægisgötu – Geirsgötu ( með biðstöð í aðrein að Kalkofnsvegi ) – Sæbraut og Snorrabraut að Hlemmi.

Akstursleiðir eftir kl. 18:00.

Eftir kl. 18:00 aka leiðir 1,3, 6, 11, 12, 13,  frá Hlemmi suður Snorrabraut, Hringbraut - Sóleyjargötu - Fríkirkjuveg – Vonarstræti – Suðurgötu, á leið út í hverfi.

Að Hlemmi aka leiðir 1,3, 6, 11, 12, 13,  Hringbraut -  Suðurgötu – Skothúsveg - (biðstöð við Hljómskála) Sóleyjargötu -  Hringbraut -  Snorrabraut, að Hlemmi

Akstursbreytingar á korti

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica