Slys / óhöpp
Leiðbeiningar til farþega sem slasast í vagni eða verða fyrir óhappi af einhverju tagi.
Ef farþegi verður fyrir óhappi í vagni skal láta vagnstjóra vita, hafi hann ekki orðið þess var. Framhald málsins ræðst af alvarleika þess, t.d. hvort kalla þurfi til sjúkrabíl og lögreglu, eða það verði tilkynnt til Farþegaþjónustusviðs sem hefur með eftirfylgni slíkra mála að gera.
Sviðsstjóri Farþegaþjónustu er Júlía Þorvaldsdóttir sem svarar fyrirspurnum í síma 540 2709.
Ef ökutæki lendir í árekstri við strætisvagn þá er venjan að ökumenn beggja ökutækja fylli út tjónatilkynningu á staðnum eða kalli til lögreglu ef um stærri tjón eða slys á fólki er að ræða.
Vagnar og farþegar eru tryggðir hjá VÍS.
