Þjónustu- og opnunartími
Símaþjónusta
Skrifstofa og skiptiborð
Skrifstofa Strætó bs. er opin alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00.
Skiptiborð er opið alla virka daga frá kl. 07:30 til 22:00, laugardaga frá kl. 9:00 til 19:00 og sunnu- og helgidaga frá kl. 11:30 til 19:00.
Strætókort og Nemakort
Símaþjónusta vegna Strætókorta og Nemakorta er veitt á milli kl. 13:30 og 16:00 mánudaga og fimmtudaga. Einnig má senda tölvupóst á netfangið kort@straeto.is vegna almennra korta og á netfangið skolakort@straeto.is vegna Nemakorta.
Aksturstími
Akstur hefst að morgni dags er sem hér segir:
- á virkum dögum og laugardögum hefst akstur frá kl. 06:30 til 07:00
- á sunndögum og helgidögum hefst akstur á bilinu frá kl. 11:30 til 12:00
Athugið að akstur hefs á mismunandi stöðum á hverri leið.
Á kvöldin aka vagnarnir samkvæmt áætlun til um kl. 24:00.
Í flestum tilvikum ljúka vagnar akstri á endastöðvum að kvöldi. Í nokkrum tilfellum stendur þó svo á í síðustu ferð, að vagn verður að ljúka ferðinni á millistöð og er þess þá sérstaklega getið í tímatöflum yfir síðustu ferðir á hverri leið.
Sérakstur er gildandi fyrir nokkra daga á hverju ári, t.d. aðfangadag og gamlársdag. Þess er getið sérstaklega í leiðabók hvenær síðustu ferð er ekið þessa daga.
Enginn akstur er á föstudeginum langa, páskadag, jóladag og nýarsdag.
