klukkan er 11:18


Þjónustustöðvar

Allar almennar upplýsingar um brottfarartíma strætisvagna er að finna á vefsíðu okkar www.straeto.is.  Á vefsíðunni (sjá flipann "Kaupa kort / Nemakort" hér að ofan) er ennfremur hægt að kaupa öll fargjöld og greiða með greiðslukorti.  Fargjöld og farmiða má fá heimsend eða sækja þau á þá afgreiðslustaði sem í boði eru þegar kaup eru framkvæmd.

 

Ennfremur má sækja eftirtalda þjónustu á þjónustustöðum sem hér segir:

Farmiðasala

Í þjónustustöðvum Strætó bs. á Hlemmi, í Mjódd og í Firðinum býðst almenn farmiðasala, strætókortasala og upplýsingagjöf til viðskiptavina.  Ennfremur má kaupa farmiða og strætókort á sölustöðvum Strætó bs. á höfuborgarsvæðinu, Akranesi, Hveragerði og Selfossi (sjá nánar sölustaði undir liðnum Gjaldskrá hér til vinstri). Strætóbílstjórar selja almenna farmiða (11 miða röð).

Biðaðstaða innandyra

Biðaðstaða innandyra er í boði á Hlemmi, í Mjódd og í Firðinum.  Ennfremur er biðaðstaða innandyra hjá N1 (Fossnesti) á Selfossi, í Shell skálanum í Hveragerði og í Upplýsingamiðstöðinni á Akranesi.

Símaþjónusta

Símaþjónusta vegna Strætókorta og Nemakorta er veitt á opnunartíma skiptiborðs.  Einnig má senda tölvupóst á netfangið kort@straeto.is vegna almennra korta og nemakorta.

Aðstoð við kaup á Netinu

Ef upp koma vandamál við kaup á netinu er best að hafa samband í síma 540 2700 eða senda tölvupóst á netfangið kort@straeto.is. 

 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica