klukkan er 11:18


Farangur í vögnum

Heimilt er að ferðast með barnavagna og barnakerrur í vögnum strætó, meðan (og ef) rými leyfir.

Reiðhjól eru einnig leyfileg meðan (og ef) rými leyfir. Barnavagnar og hjólastólar hafa forgang og geta hjólreiðamenn þá átt það á hættu að vera vísað úr vagninum með hjól sín.

Hlaupahjól eru leyfileg í vögnunum ef þau eru brotin saman, stranglega bannað er að stíga á hlaupahjól inni í vögnunum. Það sama á við um línuskauta, ekki er leyfilegt að vera á línu- eða hjólaskautum inni í vögnunum.
Viðskiptavinir eru beðnir um að vera ekki með vörur meðferðis sem valdið geta óþrifnaði og/eða óþægindum fyrir aðra farþega.

Gæludýr eru ekki heimil, gildir þá einu hvort þeir eru í sérstökum búrum fyrir gæludýr eður ei.  Sérþjálfaðir og sérmerktir blindrahundar eru undanskildir.

 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica