Kaup á 30 nýjum strætisvögnum og 2 metanvögnum samþykkt
Liður í eflingu almenningssamgangna
Efnt var til úboðs fyrr á þessu ári, og bárust alls 4 tilboð. Að vandlega athuguð máli ákvað stjórn byggðasamlagsins að hafna öllum tilboðunum, þar sem ekkert þeirra uppfyllt öll ákvæði útboðsskilmálanna. Jafnframt var samþykkt að efna til s.k. samningskaupa, samkvæmt ákvæðum í lögum um opinber innkaup. Öllum bjóðendum var boðið að skila inn nýjum tilboðum, sem að mestu voru byggð á sömu skilmálum og í upphaflega útboðinu. Tilboð B&L reyndist vera hagstæðast, og því ákveðið að ganga til samninga á grundvelli þess. Gert er ráð fyrir að fyrstu 5 vagnarnir verði afhentir í árslok 2004.
Stjórnin samþykkti jafnframt að ganga til samninga við Heklu hf. um kaup á 2 metanknúnum strætisvögnum af Scania gerð. Í stað hefðbundinnar díselolíu brenna þessir vagnar metangasi, og eru því afar umhverfisvænir. Ekki skemmir fyrir að orkugjafinn (metangasið) er alfarið ínnlendur, því metangasið er framleitt á sorphaugunum í Álfsnesi. Með þessu vill Strætó bs. undirstrika áherslu sína á eflingu umhverfisvænnar starfsemi, og leggja þannig sitt af mörkum til að minnka skaðlegan útblástur í andrúmsloftið.
